Innlent

Ógætilegur akstur á skólalóð en báðir aftur í þegar lögreglu bar að

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust í gær þrjár tilkynningar þar sem um var að ræða ógætilegur akstur bifreiða á bifreiðastæðum. Í tveimur tilvikum höfðu ökumenn látið af háttsemi sinni þegar á staðinn var komið.

Í þriðja tilvikinu var um að ræða glæfraakstur ökumanns númerslausrar bifreiðar á skólalóð í Grafarvogi. Þegar lögregla kom á vettvang gáfu lögreglumenn ökumanni stöðvunarmerki, en án árangurs.

Á endanum vildi ekki betur til en svo að bifreiðin rann inn í nálægan runna en þegar lögreglumenn komu að bifreiðinni og litu inn sátu tveir einstaklingar í aftursætinu en enginn við stýrið.

Þó hafði enginn yfirgefið bifreiðina frá því hún lenti í runnanum, segir í tilkynningu lögreglu. Þar segir enn fremur að málið sé nú í rannsókn og þar séu undir nokkrir brotaflokkar.

Fjórir voru stöðvaðir grunaðir um ölvunarakstur í borginni í gærkvöldi og nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×