Um er að ræða nýtt upplifunarverk úr smiðju Miðmættis. Frumsýningin er þann 10. október. og verður á fjölum leikhússins miðvikudagsmorgna og laugardaga á leikárinu 2021-2022.

„Tjaldið er upplifunarverk þar sem öll skynfæri eru virkjuð,“ segir Agnes um þessa undirfallegu sýningu. Börnin fá að skyggnast undir leikhústjaldið og upplifa tóna, liti og snertingu sem bæði örvar, þroskar og gleður andann.

Fastir meðlimir í Miðnætti með Agnesi eru þær Eva Björg Harðardóttir, búninga- og sviðsmyndahönnuður og Sigrún Harðardóttir, tónlistarhöfundur- og flytjandi. Í sýningunni Tjaldið leikur einnig Nick Candy. Framleiðandi verksins er Kara Hergils.

„Miðnætti hefur lengi langað til að búa til verk fyrir allra allra yngstu áhorfendurna og fjölskyldur þeirra enda sýna rannsóknir að örvun á heilastarfsemi snemma á ævinni er mjög mikilvæg í þroska barna. Hugmyndin að Tjaldinu kviknaði síðan bæði í kjölfar barneigna í hópnum, en líka í tengslum við tónlistartímana Bambaló fyrir ungabörn og foreldra sem Sigrún þróaði og kennir,“ segir Agnes.

Leikhópurinn Miðnætti er barnafjölskyldum að góðu kunnur enda hefur hann á síðustu árum sett upp fjölmargar metnaðarfullar og stórskemmtilegar sýningar fyrir börn á öllum aldri. Hér má til dæmis nefna Geim-mér-ei, Á eigin fótum og sýningar og sjónvarpsþætti um álfana dásamlegu Þorra og Þuru.

„Ekki er stuðst við móðurmál í sýningunni svo hún er ætluð öllum börnum óháð tungumáli.“
Sýningin er 45 mínútur að lengd og svo gefst fjölskyldum tækifæri á að vera áfram í rýminu og skoða og leika í leikmyndinni.

„Allir gestir sýningarinnar sitja inn í Tjaldinu á sviðinu og er því mjög innileg upplifun. Fjarlægðar á milli áhorfendahópa er þó gætt og farið er eftir ítrustu sóttvörnum. Grímuskylda gildir fyrir foreldra og forráðamenn á meðan sýningunni stendur.“