Magt hefur gerst í lífi Adela frá því hún gaf síðast út plötu árið 2015. Hún gifti sig, skildi og opnaði sig um baráttu sína við þunglyndi.
Ástin og ástarsorgin hefur leikið stórt hlutverk í lögum Adele og nýja lagið er engin undantekning. Þar gerir hún upp samband sem telja má líklegt að sé við fyrrverandi eiginmann sinn sem hún á eitt barn með.
Tónlistarmyndbandið við lagið er lengi vel í svart-hvítu en svo brjótast fram haustlitir í síðari hlutanum. Xavier Dolan leikstýrði myndbandinu þar sem Adele sést pakka niður í tösku og yfirgefa heimili í sveitinni sem hefur verið selt.
Svo sest hún upp í bílinn, syngur með sinni stórkostlegu rödd og gerir upp sambandið.