„Gott að sjá Emil brosa“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. nóvember 2021 16:29 Emil er í láni hjá Sogndal frá Sarpsborg 08. SARPSBORG 08 Eirik Bakke, þjálfari Sogndal, segir að það hafi verið gott að hitta Emil Pálsson og sjá hann brosa.
Sem kunnugt er fór Emil í hjartastopp í leik Sogndal og Stjørdals-Blink í norsku B-deildinni í fyrradag. Hann var lífgaður við á staðnum og fluttur með sjúkraþyrlu á sjúkrahúsið í háskólasjúkrahúsið í Haukeland í Björgvin. Emil er vakandi og staðan á honum er góð miðað við aðstæður. Fjölskylda hans hitti hann í dag og sömu sögu er að segja af Bakke og Marius Lenni Bøe, aðstoðarþjálfara Sogndal. Á Facebook-síðu Sogndal sagði Bakke að það hafi legið ágætlega á Emil þegar hann hitti hann og það hafi sérstaklega verið gott að sjá Vestfirðinginn brosa. Í svari við fyrirspurn Vísis sagði Geir Inge Heggestad, upplýsingafulltrúi Sogndal, að Emil yrði á spítala næstu daga og myndi gangast undir frekari rannsóknir. Að sögn Heggesteds hafa samherjar Emils hjá Sogndal það ágætt. Þeir æfðu af fullum krafti í dag og gera það aftur á morgun. Á föstudaginn fer Sogndal til Oslóar þar sem liðið mætir KFUM Oslo í norsku B-deildinni á laugardaginn. Leikurinn kláraður eftir viku Leikur Sogndal og Stjørdals-Blink í fyrradag var flautaður af eftir að Emil hné niður. Þá voru tólf mínútur liðnar af leiknum og Sogndal var með 1-0 forystu. Síðustu 78 mínútur leiksins verða kláraðar næsta miðvikudag. Fyrir leikinn munu leikmenn Sogndal sýna Emil stuðning með táknrænum hætti.
Norski boltinn Mest lesið „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Fleiri fréttir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak Sjá meira