Margir komnir með jólarjúpur í hús Karl Lúðvíksson skrifar 10. nóvember 2021 11:25 Rjúpan í vetrarbúningi. MYND/af netinu Rjúpnaveiðar virðast ganga ágætlega þrátt fyrir að veiðidagurinn hafi verið styttur á þann veg að aðeins megi ganga frá hádegi á leyfðum veiðidögum.
Skyttur landsins hafa verið duglegar á fjöllum frá því að veiðitíminn hófst á rjúpuna og það er ekki annað að sjá og heyra en að margir séu þegar komnir með í jólamatinn og séu hættir veiðum. Tilmæli þess efnis að reyna hafa rjúpu í forrétt hafa kannski ekki verið mönnum ofarlega í huga en af þeim skyttum sem við höfum heyrt af eru flestir að taka 10-15 rjúpur, stundum minna, og kalla þetta svo bara gott. Það hefur ekki heyrst að skyttur séu að tala um að minna sé af fugli entil dæmis í fyrra en nokkrir hafa séð mjög stóra hópa á sinni göngu. Veiðitímabilið er nú bráðum hálfnað og það spáir ekki sérstöku veðri á suður og vesturlandi frá laugardegi en föstudagurinn lítur ágætlega út um allt land eins og er. Það verða því líklega fáir á fjöllum í þessum landshlutum þessa helgi en nokkuð líklegt er að þeir sem eiga eftir að ná í sínar rjúpur fari þá norður eða austur til að leita að fugli. Vikuna þar á eftir á samkvæmt spánni að snúast til norðlægra átta og þá kólnar heldur. Það þykir oft best að eltast við rjúpu í góðu frosti svo það er vonandi að spáin verði rjúpnaskyttum hliðholl svo sem flestir nái í jólamatinn.
Skotveiði Jól Mest lesið Laxveiðin hafin í Skotlandi Veiði Flott veiði í Köldukvísl og Sporðöldulóni Veiði Lokatölur komnar úr Norðurá Veiði Miðfjarðará: Fín opnun en aðstæður erfiðar Veiði Erlendum veiðimönnum mun fjölga Veiði Ágæt byrjun hjá mörgum rjúpnaskyttum Veiði Veiðin með Gunnari Bender: „Það er búið að vera hundleiðinlegt veður í Reykjavík“ Veiði Fjórar ár komnar yfir 1000 laxa Veiði 59 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði Fjórtán punda urriði í Galtalæk Veiði