Ford, Mercedes-Benz, General Motors og Volvo eru á meðal bílaframleiðendanna sem skrifuðu undir yfirlýsinguna sem tilkynnt var um á COP26, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í Skotlandi, þar sem samgöngur eru í brennidepli í dag. Saman framleiddu fyrirtækin um fjórðung af öllum seldum bílum í heiminum árið 2019.
Stefnt er að því taka bensín- og dísilbíla enn fyrr úr umferð á svonefndum „leiðandi mörkuðum,“ fyrir árið 2035, að sögn New York Times.
Toyota, Volkswagen og Nissan-Renault samsteypan kusu hins vegar að sitja hjá þrátt fyrir að yfirlýsingin sé ekki lagalega bindnandi. Bandaríkin, Kína og Japan, sem skrifuðu heldur ekki undir, eru þrír stærstu bílamarkaðir í heimi.
Ríki eins og Bretland, Kanada, Indland, Holland, Noregur, Pólland og Svíþjóð skrifuðu undir plaggið.
Í staðinn fyrir bensín- og olíuhákana ætla bílaframleiðendurnir að smíða raf- og vetnisbíla. Rafbílar losa ekki gróðurhúsalofttegundir í akstri en jafnvel þó að þeir séu hlaðnir með rafmagni sem er framleitt með bruna á kolum eða gasi er talið að þeir séu vistvænni en bensín- og dísilbílar.
Vegasamgöngur eru uppspretta um fimmtungs losunar mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni. Rétt innan við helmingur losunarinnar kemur frá fólksbílum og sendiferðabílum.
Verja tugum þúsunda milljarða í þróun rafbíla og rafhlaðna
Reuters-fréttastofan segir að bílaframleiðendur heimsins hafi nú áform um að verja meira en 65 þúsund milljörðum króna í þróun á rafbílum og rafhlöðum til ársins 2030. Það er aukning um tvö þúsund milljarða frá því að fréttastofan tók síðast saman slíkar tölur fyrir tæpum þremur árum.
Þau fyrirtæki sem skrifuðu ekki undir samkomulagið sem var kynnt í Glasgow í dag fjárfesta engu að síður sum í rafbílum. Volkswagen ætla að verja tugum milljörðum dollara í að reisa sex rafhlöðuverksmiðjur, setja upp rafhleðslustöðvar og þróa fleiri en áttatíu nýja rafbílategundir fyrir árið 2025.
Talsmaður Volkswagen segir að þýski bílaframleiðandinn hafi ekki viljað skrifa undir yfirlýsinguna þar sem fyrirtækið geri sér grein fyrir að allir heimshlutar séu ekki tilbúnir að taka stökkið í orkuskiptum strax og að finna veðri aðrar leiðir til að ná kolefnishlutleysi þar.
Toyota hefur haldið að sér höndum í rafbílaþróun og einbeitt sér frekar að vetnisbílum. Japanski bílaframleiðandinn ætlar engu að síður að bjóða upp á fimmtán tegundir rafbíla árið 2025.
Fjöldi ríkja hefur tilkynnt um áform um að banna sölu á bensín- og dísilbílum á næstum árum, þar á meðal íslensk stjórnvöld.