Innlent

Simmi Vill segir hið opin­bera skaða­bóta­skylt

Jakob Bjarnar skrifar
Simmi Vill skorar á að Bjarni láti nú til sín taka, að fyrra bragði, og reikni út hvað vert sé að greiða fyrirtækjum sem súpa þurfi seyðið af sóttvarnaraðgerðum mikið. Áður en til málsókna kemur.
Simmi Vill skorar á að Bjarni láti nú til sín taka, að fyrra bragði, og reikni út hvað vert sé að greiða fyrirtækjum sem súpa þurfi seyðið af sóttvarnaraðgerðum mikið. Áður en til málsókna kemur. vísir/vilhelm

Sigmar Vilhjálmsson veitingamaður og atvinnurekandi skorar á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra að bæta fyrirtækjum skaðann sem sóttvarnarráðstafanir valda.

„Sem atvinnurekandi þá er mér enn og aftur gert að bregðast við með engum fyrirvara. 50 manna takmarkanir taka gildi á miðnætti. Gildir í 3 vikur. Tekjufall blasir við og framundan er Desemberuppbót starfsmanna. Umfram útgjöld sem leggjast þungt á lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafa verið að berjast í bökkum síðustu 20 mánuði,“ segir Sigmar, sem gegnir nafninu Simmi Vill, í Facebook-færslu. Þetta eru viðbrögð hans við nýjum aðgerðum í sóttvörnum sem kynntar voru nú í hádeginu.

Simmi stóð meðal annarra nýverið fyrir stofnun nýju félagi atvinnurekenda – Atvinnufjelagið –sem einkum lætur sig varða hagsmuni lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þetta er klofningsfélag úr Samtökum atvinnulífsins (SA) en Simmi segir að í SA ráði stærri fyrirtæki alfarið för. Hann segir að efnahagsúrræðin sem nú eru í gildi séu frá því í mars 2020. Bráðum tveggja ára gömul.

„Núna skora ég á Bjarna Benediktsson opinberlega að leggjast yfir það með sínu fólki hvernig hægt er að mæta að fyrrabragði og bæta þann skaða sem þessar ákvarðanir eru að valda fyrirtækjum í landinu eina ferðina enn,“

segir Simmi og „taggar“ fjármálaráðherra í færslu sinni. Hann fullyrðir að Bjarni hafi viðurkennt opinberlega að hið opinbera sé skaðabótaskylt að einhverju marki með þessum aðgerðum. Um það eigi því ekki að þurfa að deila.

„En núna er ekki tíminn til að bíða eftir málsóknum, heldur að koma að fyrrabragði með lausnir,“ segir Simmi og hvetur til samstöðu.


Tengdar fréttir

Fimmtíu manna samkomubann á miðnætti

Hert verður á samkomutakmörkunum á miðnætti en þá mega fimmtíu manns koma saman en þó með svigrúmi fyrir 500 manna viðburði. Opnunartími veitinga- og skemmtistaða verður styttur um klukkustund og þeim gert að loka klukkan 22:00.

Vonbrigði að þessi staða sé uppi þrátt fyrir bólusetta þjóð

Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra segir það gríðarleg vonbrigði að staðan sé jafn slæm og raun ber vitni í kórónuveirufaraldrinum. Metfjöldi hefur greinst smitaður af veirunni nær alla daga þessarar viku og hafa sóttvarnaaðgerðir nú verið hertar til muna vegna stöðunnar .




Fleiri fréttir

Sjá meira


×