Lohan sló eftirminnilega í gegn í hlutverki tvíburanna uppátækjasömu í kvikmyndinni The Parent Trap árið 1998. Á unglingsárum lék hún svo í fjölmörgum myndum á borð við Freaky Friday, Herbie og Just My Luck en þekktust er hún fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Mean Girls.
Hún hefur hins vegar látið lítið fyrir sér fara í heimi kvikmyndanna undanfarin ár. Eins og margar barnastjörnur átti hún erfitt með frægðina og komst í kast við lögin oftar en einu sinni. Þá hefur hún einnig opnað sig um fíknivandamál.
Árið 2019 gaf MTV út raunveruleikaþættina Lindsay Lohan's Beach Club og í kjölfarið lét leikkonan hafa eftir sér að hana langaði til þess að snúa aftur á hvíta tjaldið og endurheimta líf sitt.
Aðdáendur Lohan geta nú fagnað því að hún mun fara með aðalhlutverk í rómantískri jólamynd sem væntanleg er á næsta ári. Það er streymisveitan Netflix sem framleiðir myndina sem er ekki ennþá komin með nafn.
Tökur standa yfir þessa dagana og hefur Netflix birt fyrstu mynd út tökunum.
She s back!
— Netflix (@netflix) November 12, 2021
Here is your first look at Lindsay Lohan in her upcoming holiday rom-com, co-starring Chord Overstreet. pic.twitter.com/eycI907iBm
Lohan deildi sömu mynd á Instagram-síðu sinni þar sem hún segist vera snúin aftur til vinnu og gæti ekki verið ánægðari.
Hún fer með hlutverk ofdekraðs hótelerfingja sem er nýbúinn að trúlofast kærastanum þegar hún lendir í skíðaslysi sem veldur henni minnisleysi.
Mótleikari Lohan er Glee-stjarnan Chord Overstreet. Aðrir leikarar í myndinni eru George Young, Jack Wagner og Olivia Perez.