Nálgast afslætti mörghundruð fyrirtækja á einum stað 1111.is 26. nóvember 2021 08:50 Brynja Dan Gunnarsdóttir heldur utan um tilboð hundruða fyrirtækja á afsláttarsíðu sinni 1111.is. Í dag er Svartur föstudagur og hægt að gera dúndurkaup. Svartur föstudagur er í dag og afsláttarsíðan 1111.is telur hátt í fjögurhundruð fyrirtæki.
Þeir sem misstu af Degi einhleypra eða Singles Day þurfa sannarlega ekki að örvænta því Svartur föstudagur bombast nú í gang. Hundruð fyrirtækja bjóða veglega afslætti og hægt er að gera dúndur kaup. Brynja Dan Gunnarsdóttir eigandi afsláttarsíðunnar 1111.is segir fólk ganga skipulega til verks í ár, umferðin inn á síðuna sé svipuð og í fyrra en fólk staldri lengur við. „Það er eins og fólk sé að gera stærri kaup, skipuleggja sig betur og fer markvissara í málið en að bara skrolla og skoða. Við búumst við jafn mikilli aðsókn í dag og á Singles Day en þó dreifist hún yfir fleiri daga núna. Nú getur fólk farið inn og skoðað hvað er í boði og klárað svo kaupin yfir helgina eða á mánudaginn. Enda er fjöldi verslana inni á 1111.is og því um að gera að vera skipulagður, við erum að nálgast 400 skráð fyrirtæki sem er frábært! Við viljum hafa úrval og fjölbreytni og það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Brynja, úrvalið spanni alla flóruna. „Við erum mjög stolt af því hve úrvalið er fjölbreytt á síðunni. Það er hægt að kaupa hjól, sófa, rúm, snyrtivörur, dekur, kynlífstæki, skart, barnavörur, verkfæri, útivistafatnað og græjur, líka upplifanir á borð við hótelgistingu, út að borða, þyrluflug og allt þar á milli. Algengast er að afsláttur sé a.m.k. 20%, ýmist flatur eða af ákveðnum vörum en margar verslanir kaupa sérstaklega inn vörur fyrir þessa daga sem hægt er að bjóða á góðum afslætti. Svo er alltaf gaman að sjá afslátt upp á 60, 70 80 og 90%! Við erum ekki dottin í útsölur eftir Thanks Giving eins og kaninn en neytendur gera samt ráð fyrir veglegum afslætti á Svörtum föstudegi.“ Brynja hefur byggt upp síðuna 1111.is allt frá árinu 2015 og er viðmótið einfalt og þægilegt í notkun. „Efst eru flokkar sem ná yfir flest ef ekki allt og svo er leitarvél á síðunni líka svo enga stund tekur að finna hvort ákveðin vara sé með eða ekki. Við erum einnig alltaf að reyna að gera eitthvað skemmtilegt og í ár er hægt að smella á hnapp og þá byrjar JólaFlashBack að spilast. Það er kærkomið að setjast niður með piparkökurnar og kakóið, hlusta á jólalögin og klára innkaupin og fá sent heim. Rúsínan í pulsuendanum er síðan sú að Netgíró borgar reikninginn fyrir nokkra heppna notendur síðunnar,“ segir Brynja.
Verslun Mest lesið Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Verðbólgan hjaðnar þvert á spár Viðskipti innlent Segir stefna í að Vélfag verði lagt niður vegna þvingananna Viðskipti innlent Óvænt en breytir þó ekki spám Viðskipti innlent Reiknuðu með halla en enduðu í hundruð milljóna króna plús Viðskipti innlent Fjórir ráðnir nýir fagstjórar hjá Kvikmyndaskólanum Viðskipti innlent „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Viðskipti innlent Fiskar komnir í fyrstu 25 metra eldistankana Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Rekstur Árborgar jákvæður og bæjarstjóri fagnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira