Sextán stiga frost á Hellu í nótt og áfram kalt Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2021 07:12 Frost verður víða á bilinu núll til átta stig og kaldara inn til landsins. Vísir/Vilhelm Reikna má með norðlægri átt í dag en norðan- og norðvestan kalda austast fram á kvöld. Dálítil él norðaustantil á landinu þar til síðdegis.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að kalt verði í veðri þar sem frost verði víða á bilinu núll til átta stig og kaldara inn til landsins. Þar sem kaldur vinur andar af hálendinu mældist til dæmis mesta frost í nótt á Hellu, rúmlega sextán stig. „Í kvöld nálgast lægð úr suðvestri með vaxandi suðaustanátt og minnkandi frosti. Það gengur í hvassa suðaustanátt í nótt og slær líklega í storm á norðanverðu Snæfellsnesi. Snjókoma í fyrstu og skiptir fljótt yfir í rigningu á láglendi, en hægari vindur og úrkomulítið um norðaustanvert landið. Flestir sofa versta veðrið af sér því í fyrramálið á morgun snýst hægari í suðvestanátt með skúrum, en það fer kólnandi með éljum seinni partinn.“ Spákortið fyrir kluykkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðaustan 13-20 með snjókomu og síðar rigningu á láglendi, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst í suðvestan 8-15 m/s með slydduéljum eða éljum síðdegis, en léttir til á Norðausturlandi. Hiti 0 til 5 stig. Á föstudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og dálítil él, en víða bjartviðri um austanvert landið. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðaustantil. Á laugardag: Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Frost um land allt. Á sunnudag: Hvöss suðaustanátt og dálítl rigning. Hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur, skýjað og þurrt um norðaustanvert landið og vægt frost á þeim slóðum. Á mánudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt með dálítilli vætu, en þurrt norðanlands. Hiti kringum frostmark. Á þriðjudag: Líkur á austlægri átt með stöku skúrum eða éljum en bjartviðri vestantil á landinu. Hiti breytist lítið.
Veður Rangárþing ytra Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira