Eins og Innherji greindi frá fyrr í dag hefur Brynjar verið ráðinn sem aðstoðarmaður Jóns auk Hreins Loftssonar lögmanns.
„Jón vill fá mann sem hefur reynslu af málaflokknum og þekkir þingið þannig að segja má að hann sé að slá tvær flugur í einu höggi. Ég reikna með því,“ segir Brynjar í samtali við Vísi.
Komið hefur fram að ýmsum þeim sem tilheyra stjórnaraandstöðunni líst ekki á blikuna, að þarna sé komin býsna harðsnúinn flokkur manna í innanríkisráðuneytið.
Andrési Inga líst ekki á blikuna
Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata gerði skipan Jóns að sérstöku umfjöllunarefni í sinni ræðu á þinginu í gær, þegar Katrín Jakobsdóttir flutti stefnuræðu sína í gær, að það væri móðgun við fólk „gerir réttmæta kröfu um löngu tímabærar framfarir í þágu réttlætis.“ Og þegar hann sá fréttirnar í morgun varð honum hreinlega flökurt og tjáði það á Twitter.
Forsætisráðherra sagði í gær að baráttan gegn kynbundnu ofbeldi og bætt staða brotaþola verði í forgangi hjá ríkisstjórninni. Þetta er teymið sem á að stýra baráttunni. 🤮🤮🤮https://t.co/VUAn58OJ0a
— Andrés Ingi (@andresingi) December 2, 2021
Brynjar segir þá þrjá auðvitað menn sem standa fyrir eitthvað, hafi allir verið í pólitík og þekkja það. Báðir aðstoðarmennirnir, hann og Hreinn, þekki þessa málaflokka vel frá sitthvorum vinklinum.
„Jón er að fá menn með fjölbreytta reynslu og ég skil ekki af hverju menn eru að gagnrýna það. Menn geta haft ýmsar skoðanir í pólitík. Ekki héldu þeir að hann myndi fá einhverja menn úr vinstri flokkunum til að aðstoða sig? Þeir hafa kannski reiknað með því, ég veit það ekki. En það þarf að benda Andrési á að það eru til lyf við flökurleika.“
Brynjar náði ekki inn á þing í síðustu kosningum en er nú kominn á þingið bakdyramegin aftur. Er þetta svona gott mötuneyti?
„Nei, það er það nú ekki en einhvers staðar verður maður að borða.
En það var sem sagt óskað eftir þessu þá verður maður bara við því nema einhver fyrirstaða sé. Þetta er auðvitað bara tímabundið.“
Ætla að láta hendur standa fram úr ermum
Fram hefur komið að Jón verður skipaður innaríkisráðherra í 18 mánuði í lengsta falli og þá taki Guðrún Hafsteinsdóttir 1. þingmaður í Suðurkjördæmi við. Brynjar segir þetta nýja starf leggjast ágætlega í sig, þau séu mörg mál sem þurfi að laga og ýta úr vör.

„Það fer svo eftir því hvað ráðherra ætlar að setja puttann á púlsinn og hvaða hugmyndir hann hefur með að forgangsraða og svoleiðis. Ég er bara til aðstoðar og að veita góð ráð þegar eftir því er leitað. Þetta er ekkert öðruvísi.“
Viðleitnin hefur heldur verið sú að aðstoðarmenn ráðherra hafi síðar látið á það reyna að komast á þing. „Já, ég geri allt öfugt,“ segir Brynjar. Hann segir þetta sérstakar aðstæður.
„Ráðherra á stuttum tíma þarf að láta hendur standa fram úr ermum og setja mark sitt á þetta. Og þá ákveður hann að leita til manna sem þekkja málaflokkinn og ekkert óeðlilegt við það. þó hann hafi verið alþingismaður áður. ekki eins og ég sé tekinn út úr móanum.“