Clippers hafði betur í slagnum um Englaborgina | Stríðsmennirnir hefndu sín gegn Sólunum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. desember 2021 09:46 LeBron og félagar í Lakers voru alltaf skrefi eftir á gegn Clippers. Harry How/Getty Images Fjöldi leikja fór fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þar ber helst að nefna borgarslag Los Angeles Lakers og Clippers. Þá náði Golden State Warriors fram hefndum gegn Phoenix Suns í toppslag Vesturdeildarinnar. Það var vitað að leikur Lakers og Clippers yrði æsispennandi enda liðin með nokkurn veginn sömu tölfræði fyrir leik. Lakers voru 12-11 á meðan Clippers voru 11-11. Lið Lakers fékk jákvæðar fréttir fyrr í gær er ljóst var að stórstjarna liðsins, LeBron James, væri ekki með kórónuveiruna og væri leikfær. Á sama tíma er Clippers enn án Kawhi Leonard en það kom ekki að sök í nótt. Clippers hófu leikinn mun betur og unnu í raun fyrst þrjá leikhluta leiksins þó alltaf væri mjótt á mununum. Staðan í hálfleik 53-50 Clippers í vil. Sá munur var orðinn 12 stig í þriðja leikhluta en LeBron, Anthony Davis og félagar neituðu að gefast upp. Þegar innan við mínúta var til leiksloka var munurinn kominn niður í aðeins tvö stig og endurkoma í kortunum. Luke Kennard og Marcus Morris settu hins vegar niður risastór þriggja stiga skot fyrir Clippers sem vann leikinn með fjögurra stiga mun, lokatölur 119-115. Morris gerði sér lítið fyrir og skoraði sex þriggja stiga körfur í leiknum, það munar um minna. Marcus Morris banks in a DAGGER 3 to seal the Clippers' W pic.twitter.com/T3qSLXMNgf— NBA TV (@NBATV) December 4, 2021 Morris var stigahæstur hjá Clippers með 21 stig. Þar á eftir komu Kennard og Paul George báðir með 19 stig. Sá síðarnefndi bauð einnig upp á átta fráköst og níu stoðsendingar. Hjá Lakers var Davis stigahæstur með 27 stig ásamt því að taka 10 fráköst. LeBron skoraði 23 stig, tók 11 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Þá skoraði Malik Monk 20 stig. Morris: 21 PTS, 6 3PMGeorge: 19 PTS, 8 REB, 9 AST@MookMorris2 and @Yg_Trece lead the @LAClippers to the win in the Battle of LA! pic.twitter.com/rK8puvapz3— NBA (@NBA) December 4, 2021 Toppslagur Vesturdeildar var langtum frá jafn spennandi og leikurinn í Los Angeles. Fyrir leikinn voru liðin jöfn á toppi deildarinnar með 19 sigra og aðeins þrjú töp. Það var þó ekki að sjá er stríðsmennirnir hans Steve Kerr náðu fram hefndum gegn Sólunum frá Phoenix og það sannfærandi. Það er þó vert að taka fram að það vantaði skærustu sólina í lið Suns í nótt, Devin Booker var fjarri góðu gamni vegna meiðsla aftan í læri. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en í þeim síðari stungu Stephen Curry og félagar einfaldlega af. Unnu þriðja leikhluta með níu stiga mun og þann fjórða með tíu stiga mun, lokatölur 118-96. Smooth handles, big buckets and a monster jam @StephenCurry30 (23 PTS, 6 3PM) and @juanonjuan10 (17 PTS, 5 AST) put on a show in the @warriors win! pic.twitter.com/ZpiSaB3kj4— NBA (@NBA) December 4, 2021 Curry var stigahæstur í liði Warriors með 23 stig ásamt því að taka 5 fráköst og gefa jafn margar stoðsendingar. Gary Payton II og Andrew Wiggins komu þar á eftir með 19 stig hvor. Þá var Draymond Green með 9 stig, 9 stoðsendingar og 9 fráköst. Þá vann Utah Jazz sjö stiga sigur á Boston Celtics, 137-130. Donavan Mitchell með 34 stig fyrir Jazz og Mike Conley þar á eftir með 29 stig. Jayson Tatum setti niður 37 stig fyrir Celtics og Dennis Schröder gerði 26 stig. The Class of 2017 showed out in Utah x @spidadmitchell drops 34 PTS, 6 AST and 6 3PM, and @jaytatum0 goes for 37 PTS, 6 REB and 5 AST in their matchup! pic.twitter.com/3C7l5IFxGI— NBA (@NBA) December 4, 2021 Önnur úrslit Indiana Pacers 104-113 Miami Heat Washington Wizards 101-116 Cleveland Cavaliers Atlanta Hawks 96-98 Philadelphia 76ersBrooklyn Nets 110-105 Minnesota TimberwolvesHouston Rockets 118-116 Orlando Magic Dallas Mavericks 91-107 New Orleans Pelicans Staðan er þannig að Brooklyn Nets eru á toppi Austurdeildar (16-6), þar á eftir koma Chicago Bulls (15-8) og Heat, Wizards og Milwaukee Bucks (öll 14-9). Í Vesturdeildinni eru Warriors (19-3) og Suns (19-4) á toppnum. Jazz (15-7) og Memphis Grizzlies (12-10) koma þar á eftir. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Körfubolti NBA Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Körfubolti NBA Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira