Elmas skaut Napoli upp fyrir AC Milan Arnar Geir Halldórsson skrifar 19. desember 2021 21:43 Sigurmarkinu fagnað. vísir/Getty AC Milan fékk Napoli í heimsókn í toppbaráttuslag í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Bæði lið að eltast við topplið Inter Milan en Napoli var án sigurs í þremur leikjum í röð þegar kom að leik kvöldsins. Albaninn Eljif Elmas kom Napoli yfir strax á fimmtu mínútu leiksins og það átti eftir að reynast sigurmark leiksins. Heimamenn héldu sig vera að jafna metin á 90.mínútu þegar Franck Kessie skoraði en eftir að markið var skoðað í VAR, var það dæmt af. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn