Forsvarsmenn Eikar töldu að hlutaféð í Hóteli 1919 hefði ekki haft áskilda kosti í samræmi við ábyrgðaryfirlýsingar Andra Más í kaupsamningnum þar sem gögn og upplýsingar frá fjárfestinum hefðu verið rangar og misvísandi. Skaðabótakrafa fasteignafélagsins hljóðaði upp á 54 milljónir króna.
Fasteignafélagið byggði einkum á því að við endurskoðun ársreiknings hótelsins fyrir árið 2016 hefði komið í ljós röng færsla á viðhaldssjóði sem skammtímaskuldbindingu í efnahagsreikningi félagsins fyrir kaupin. Þannig hefðu gjaldfærslur vegna framlags í viðhaldssjóðinn verið gjaldfærðar skattalega í andstöðu við lög á árunum 2005 til 2015.
Eik hefði því þurft að láta fara fram leiðréttingu upp á 53 milljónir króna til hækkunar á tekjuskattsinneign félagsins og ógreiddum sköttum sem hefði rýrt verðmæti hins selda um samsvarandi fjárhæð.
Andri Már bar því við á móti að Eik hefði fyrir kaupin látið gera ítarlega áreiðanleikakönnun sem hefði meðal annars tekið til viðhaldssjóðsins. Engum gögnum hefði þar verið leynt af sinni hálfu.
Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að sýkna Andra Má af kröfu Eikar. Dómurinn taldi meðal annars að Eik hefði ekki fært sönnur á að Andri Már hefði beitt vísvitandi blekkingum eða leynt gögnum um meðferð viðhaldssjóðsins.
Innherji er nýr sjálfstæður áskriftarmiðill innan Vísis sem mun einkum beina kastljósinu að viðskiptalífinu, efnahagsmálum og stjórnmálum. Fyrst um sinn verður efnið endurgjaldslaust og aðgengilegt öllum á Vísi en með tímanum verður einungis hægt að nálgast Innherja gegn greiðslu. Áhersla er lögð á vandaðar fréttir, fréttaskýringar, viðtöl og hlaðvörp auk þess sem Innherja er ætlaður að vera vettvangur skoðanaskipta fólks úr atvinnulífinu og stjórnmálum.