Fyrsta rafmagnsflugvélin í sögu íslensks flugs komin til landsins Kristján Már Unnarsson skrifar 27. desember 2021 21:31 Í Sundahöfn í Reykjavík í dag. Frumkvöðlarnir Matthías Sveinbjörnsson og Friðrik Pálsson myndaðir við vagninn sem flugvélin er í. Hún verður tollafgreidd eftir áramót. KMU Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga kom til landsins með skipi í dag, innpökkuð í vagni. Þessari litlu tveggja sæta flugvél er ætlað að kynna Íslendingum rafvæðingu flugsins og er vonast til að hún verði komin í flugkennslu með vorinu.
Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá sérsmíðaðan vagn hífðan í land í Sundahöfn í Reykjavík en leiguskip Eimskips kom með farminn frá Rotterdam í morgun. Í vagninum er lítil flugvél, Pipistrel Velis Electro, sem kemur ný frá verksmiðjunum í Slóveníu. Fyrir verkefninu standa þeir Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, og Friðrik Pálsson, fyrrverandi forseti félagsins, en þeir eru að safna í lið öflugra aðila til að hefja rafvæðingu flugsins hérlendis. Þeir Matthías og Friðrik höfðu frumkvæði að því að fá flugvélina keypta til landins. Friðrik vekur athygli á því að hún er fyrsta rafmagnsflugvél heims til að hljóta vottun Flugöryggisstofnunar Evrópu til almannaflugs.KMU „Já, það eru miklar væntingar. Þetta er eitt skref af mörgum í tengslum við það að fara í orkuskiptin í flugi,“ segir Matthías. „Við Matthías eru búnir að vera að glíma við þetta mál á þriðja ár. Og nú tekur við að koma saman hópi sem sýnir þessu áhuga að hjálpa okkur með þetta. Og við munum kynna þetta svo formlega eftir áramótin,“ segir Friðrik. Pipistrel Velis er fyrsta rafmagnsflugvél heims til að hljóta vottun Flugöryggisstofnunar Evrópu, EASA, til almannaflugs og um leið sú fyrsta til að hljóta slíkt alþjóðlegt flughæfisskírteini. Þeir félagarnir búast þó vart við að hún sjáist á flugi hérlendis fyrr en með vorinu. „Það er heilmikið sem er eftir núna í tengslum við að fá vélina skráða, kenna mönnum að fljúga henni og flugvirkjum að skrúfa í henni og fleira. Þetta er ný tækni. Þetta er eitthvað sem við höfum aldrei gert áður. Þannig að það tekur sinn tíma,“ segir Matthías. Flugvélin kallast Pipistrel Velis Electro og er tveggja sæta.Pipistrel Þeir segja spennandi tíma framundan í orkuskiptum flugsins. „Það er allt sem bendir til þess að þetta sé að gerast hraðar heldur en menn áttu von á að myndi gerast. Það eru fjölmargar vélar í smíðum og í reynsluflugi,“ segir Friðrik. Og þegar spurt er hvenær íslenskur almenningur geti vænst þess að fljúga á rafmagni er bent á hina sænsku E-19 Heart Aerospace, nítján sæta vél sem á að vera komin í notkun um mitt ár 2026, innan fimm ára. Matthías segir þó að hin tveggja sæta Pipistrel Velis sé fyrsta vélin á Íslandi. „Það verður hægt að kenna á þessa vél, - einn farþegi getur farið með henni, - þannig að menn geta strax farið að fljúga þessari vél bara á vormánuðum,“ segir Matthías og bætir við: „Síðan í innanlandsflugi og jafnvel millilandaflugi, það er styttra í það heldur en menn halda.“ Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Fréttir af flugi Orkuskipti Loftslagsmál Umhverfismál Orkumál Samgöngur Slóvenía Tengdar fréttir Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. 14. júlí 2021 22:44 Tillaga um orkuskipti í flugi samþykkt á Alþingi Þingsályktunartillaga umhverfis- og samgöngunefndar um orkuskipti í flugi var samþykkt samhljóða með atkvæðum 53 viðstaddra þingmanna á Alþingi í dag. 3. febrúar 2021 14:08 Spáir því að Íslendingar fljúgi á rafmagni innan 7 til 8 ára Rafmagnsbylting er framundan í flugsamgöngum, að mati flugáhugamannsins Friðriks Pálssonar, sem spáir því að rafknúnar flugvélar verði farnar að fljúga í innanlandsfluginu innan sjö til átta ára. 9. júní 2020 23:24 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira
Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. 14. júlí 2021 22:44
Tillaga um orkuskipti í flugi samþykkt á Alþingi Þingsályktunartillaga umhverfis- og samgöngunefndar um orkuskipti í flugi var samþykkt samhljóða með atkvæðum 53 viðstaddra þingmanna á Alþingi í dag. 3. febrúar 2021 14:08
Spáir því að Íslendingar fljúgi á rafmagni innan 7 til 8 ára Rafmagnsbylting er framundan í flugsamgöngum, að mati flugáhugamannsins Friðriks Pálssonar, sem spáir því að rafknúnar flugvélar verði farnar að fljúga í innanlandsfluginu innan sjö til átta ára. 9. júní 2020 23:24