Innlent

Allt að 72 tíma bið eftir niður­stöðu úr PCR

Eiður Þór Árnason skrifar
Löng röð myndaðist við Suðurlandsbraut um jólin.
Löng röð myndaðist við Suðurlandsbraut um jólin. Vísir

Óvenjumörg PCR-einkennasýni hafa verið tekin síðustu daga og fjöldinn farið fram úr afkastagetu sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans sem sér um greiningu sýnanna. Getur fólk nú átt von á því að bið eftir niðurstöðu sé allt að þrír sólarhringar eða 72 tímar.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins biðlar til fólks að hringja ekki inn á heilsugæslustöðvarnar til að spyrja um niðurstöður sínar úr sýnatöku. Mikið álag sé á stöðvunum og ekkert sem starfsfólk geti gert til að fá niðurstöður fyrr. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilsugæslunni sem segir enn fremur að unnið sé að lausnum til að stytta þessa bið. Greint var frá því í dag að Íslensk erfðagreining hafi á nýjan leik tekið að sér greiningu á innanlandssýnum. Landspítalinn mun í stað þess einbeita sér að greiningu á sýnum frá landamærum.

Alls voru tekin 3.973 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá var 1.202 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 1.061í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Þetta er næstmesti heildarfjöldi sýna sem tekinn hefur hefur verið á þessu ári.

Margir úti í kuldanum um jólin

Mjög langar raðir mynduðust við Suðurlandsbraut 34 um jólin og þurftu margir að bíða í á annan klukkutíma í miklum kulda eftir því að komast í einkennasýnatöku.

Óljóst er hvernig staðan verður á morgun, gamlársdag en þá verður opið frá 8 til 12 í sýnatöku á Suðurlandsbraut. Á nýarsdag verður ekki opið í hraðpróf né í PCR-sýnatöku fyrir ferðalög en opið verður í PCR-einkenna- og sóttkvíarsýnatöku frá klukkan 10 til 14. Fólk sem er að losna úr sóttkví fær strikamerki sent frá rakningateyminu kvöldið áður.

Búið að grípa til aðgerða til að stytta bið

Ingibjörg Salóme Steindórsdóttir, verkefnastjóri sýnatöku hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, greindi frá því í gær að vel hafi gengið að taka sýni á Suðurlandsbraut síðustu daga og tekist að útrýma löngum röðum með breytingum á starfseminni.

„Það er alveg hellings aðsókn, meiri en hefur verið, en engin röð því við erum búin að bæta fólki við og breyta. Við erum farin að taka sýni á tveimur stöðum í húsinu,“ sagði Ingibjörg. Hún bætti við að klukkutíma löng bið í röð væri vandamál sem nú sé úr sögunni.

Einnig hefur komið fram að veikindi meðal starfsfólks hafi takmarkað afkastagetu sýnatökunnar yfir jólahátíðina.


Tengdar fréttir

Líklega þriðji hver smitaður í sögulegri röð

Of snemmt er að draga ályktanir um að omíkron-afbrigðið muni ekki valda sjúkrahúskerfinu þungum búsifjum að sögn yfirlögregluþjóns. Veikt fólk beið úti tímum saman eftir sýnatöku á Suðurlandsbraut í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×