Federico Chiesa bjargaði stigi fyrir Juventus er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Napoli í stórleik kvöldsins í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Liðin sátu í þriðja og fimmta sæti deildarinnar og þurftu bæði á sigri að halda í kvöld. Napoli freistar þess að halda í við Milan-liðin tvö á toppnum og Juventus er að eltast við Meistaradeildarsæti.
Gestirnir í Napoli komust yfir á 23. mínút með marki frá Dries Mertens og staðan var því 0-1 þegar flautað var til hálfleiks.
Federico Chiesa jafnaði metin fyrir heimamenn á 54. mínútu, en það reyndist seinasta mark leiksins.
Niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli og liðin sitja því enn í þriðja og fimmta sæti deildarinnar. Napoli situr í því þriðja með 40 stig eftir 20 leiki, sex stigum á eftir Inter sem á einn leik til góða.
Juventus situr hins vegar í fimmta sæti með 35 stig, þremur stigum á eftir Atalanta sem situr í fjórða og seinasta Meistaradeildarsætinu og á einnig leik til góða.