Öruggt hjá Manchester-liðunum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. janúar 2022 15:46 Leikmenn Manchester United fagna einu fimm marka sinna í dag. Twitter/@ManUtdWomen Báðum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu er nú lokið. Manchester United vann 5-0 sigur á Birmingham City á meðan Manchester City van 3-0 sigur á Aston Villa.
María Þórisdóttir var ekki í byrjunarliði Manchester United en kom inn af bekknum síðustu tíu mínútur leiksins, staðan var þá þegar orðin 5-0. Katie Zelem kom Man Utd yfir áður en Leah Galton bætti við tveimur mörkum og staðan orðin 3-0 þegar aðeins 18 mínútur voru liðnar. Emily Ramsey, markvörður Birmingham, varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark undir lok fyrri hálfleiks og staðan 4-0 er honum lauk. Alessia Russo skoraði eina mark síðari hálfleiks og Man Utd vann þægilegan 5-0 sigur. Man City heimsótti Birmingham-borg og mætti þar heimakonum í Aston Villa. Georgia Stanway kom gestunum yfir eftir aðeins fimm mínútna leik. Victoria Losada tvöfaldaði forystuna þegar lítið var eftir af fyrri hálfleik og staðan 2-0 er liðin gengu til búningsherbergja. Stanway bætti svo við þriðja markinu þegar stundarfjórðungur var til leiksloka, lokatölur 3-0. Manchester United er í 3. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 11 leiki á meðan Manchester City er í 5. sæti með 19 stig.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Körfubolti „Skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leikmönnum í heimi“ Sport „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Körfubolti PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Fótbolti Fleiri fréttir Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Sjá meira