Ætlar ekki að vera með „VIP-leið fyrir sérhóp“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 28. janúar 2022 09:07 Jón Gunnarsson segir að með breytingunum hafi verið komið í veg fyrir að sumir kæmust fram fyrir umsóknarröðina um ríkisborgararétt. Vísir/Vilhelm Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra, segir þingmenn stjórnarandstöðunnar misskilja breytingar sem hann gerði á reglum um afgreiðslu Útlendingastofnunar á umsóknum um ríkisborgararétt. Hann hafi með breytingunum komið í veg fyrir að sumir nytu hraðari afgreiðslu umsóknar um ríkisborgararétt en aðrir. „
Það er einhver misskilningur í gangi þarna greinilega. Það er verið að vinna með afgreiðslur umsókna um ríkisborgararétt og það er bara verið að vinna þær samkvæmt lögum,“ sagði Jón í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku margir málið upp undir liðnum fundarstjórn forseta á Alþingi í gær og gagnrýndu innanríkisráðherra harðlega fyrir breytingarnar. Margir þeirra sögðu hann láta persónulegar skoðanir sínar ráða för en ekki þau lög sem í gildi væru um aðkomu Alþingis að tilteknum umsóknum. Afgreiðsla umsókna um ríkisborgarétt hefur skipst milli Alþingis og Útlendingastofnunar en umsækjendur hafa rétt á að sækja um það að mál þeirra verði tekið fyrir af Alþingi. Með breytingum Jóns er það nú þannig að umsóknir sem beint er að Alþingi njóta ekki forgangs umfram almennar umsóknir sem Útlendingastofnun sjálf tekur afstöðu til. Jón skrifaði í skoðanagrein sem birtist á Vísi í gær að með þessu hefði afgreiðslutími umsókna styst úr 16 mánuðum í upphafi árs 2020 í sex mánuði. „Þróunin hefur verið sú að fólk geti sótt um það, þegar það sækir um ríkisborgararétt, að senda umsóknina til Alþingis. Þannig var um 10 prósent af umsóknum sem fóru til Alþingis en fór að hækka í kring um 2015. Árið 2020 var þetta komið nær 40 prósentu af ölum umsóknum sem fóru til Alþingis,“ segir Jón í Bítinu í morgun. Ráðherra láti persónulega skoðun koma í veg fyrir að farið sé að lögum Stjórnarandstæðingar voru síður en svo sáttir með ráðherrann í gær. Arndís Anna Gunnarsdóttir þingmaður Pírata sagði á Alþingi í gær ráðherra tala af miklum hroka til þingsins í grein hans á Vísi. „Í greininni tekur ráðherra allan vafa af um það að hann telur það í sínum verkahring að stýra vinnu þingsins.“ Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar sagði grein ráðherrans forkastanlega. Hann virtist ekki átta sig á innihaldi laga í málaflokki sem hann stýrði. „Það er grafalvarlegt þegar ráðherra lætur persónulega skoðun sína koma í veg fyrir að stofnanir ríkisins fari að lögum. Það er alveg skýrt í lögum um veitingu ríkisborgararéttar að Alþingi skal veita ríkisborgararétt.“ Breytt verklag kom á óvart Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar sagði annmarka á afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt vissulega hafa verið rædda innan undanfarin misseri. „Sem formaður allsherjar- og menntamálanefndar, sem tók til starfa seint í nóvember, kom það okkur vissulega á óvart að það hafi orðið breyting á verklagi Útlendingastofnunar. En það er alveg ljóst að það bréf barst til þáverandi allsherjar- og menntamálanefndar. Ég get tekið undir það að ráðuneyti eða stofnanir ákveða ekki einhliða breytt verklag þingsins,“ sagði Bryndís í gær. Jón gaf ekki mikið fyrir gagnrýni stjórnarandstöðunnar og sagði athugavert að ákveðinn hópur fengi að fara fram fyrir röðina á meðan aðrir biðu eftir afgreiðslu umsókna sinna. „Vinnulag Útlendingastofnunar var það að taka alltaf umsóknir sem stendar voru til Alþingis, því þetta voru altlaf undantekningar, hraða þeim í gegn um kerfið þannig að Alþingi gæti tekið þær til afgreiðslu. Síðan þegar þetta gerist fer að myndast langur hali og fólki sem ætlar að fara eðlilega leið, fara í biðröðina og fylgja öllum reglum, að umsóknir þeirra eru farnar að sitja eftir,“ segir Jón. „Þannig að það er tekin ákvörðun um það, með samtali við Alþingi og löngum fyrirvara, að breyta þessu vinnulagi. Nú eru bara allar umsóknir afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. Það sem er að gerast núna er að það er fullt af umsóknum sem eiga að berast Alþingi, sem eru bara í röðinni, en þær hafa ekki verið teknar fram fyrir.“ Ætli ekki að bjóða flýtileið fyrir sérhóp Hann segir það ekki eiga að vera svo að fólk geti fengið flýtimeðferð og farið fram fyrir röðina með því einu að stíla umsókn sína á Alþingi. „Það er verið að vinna alveg samkvæmt lögum en við erum að gæta jafnræðis og gagnsæis.“ Kerfið hafi gengið ágætlega upp þar til fólk fór að átta sig á þessari flýtileið og undantekningin varð að meginreglu. Hann segir þó auðvitað slæmt að flýtimeðferðin sé ekki í boði fyrir þá sem virkilega þurfi á því að halda. „Ég ætla ekki að stunda það að vera með einhverja VIP-leið eins og þetta fólk virðist vera að kalla eftir, fyrir einhvern sérhóp, sem fer fram hjá þeim sem eru að bíða í röðinni. Það hafa ekki allir setið við sama borð í þessu og það er það sem við erum að svara og verður að breyta,“ segir Jón. „Það eru tilfelli þar sem er eðlilegt að Alþingi grípi inn í og veiti ríkisborgararétt í lögum, þau atvik geta alveg komið upp. Fólk sem er að missa landvistarleyfi eftir þrjá, fjóra mánuði og það er ekki komið að umsókninni þeirra. Fólk sem uppfyllir skilyrðin að öðru leyti. Það er ástæða til að skoða þeirra mál og ekki reka þau úr landi.“
Alþingi Flóttafólk á Íslandi Hælisleitendur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Bítið Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Sjá meira