Skoðun

Hverju skila for­varnir?

Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

Forvarnir beinast að samfélaginu öllu, hópum eða einstaklingum. Almennt séð miða þær að því að efla heilbrigði og fyrirbyggja sjúkdóma og slys með því að beita snemmtækri íhlutun og viðeigandi aðgerðum sem byggja á góðum gögnum. Mikilvægt er að afla sér þekkingar til að vinna út frá og reyna að greina frávik sem beina þarf sjónum að. Forvarnir eru lýðheilsumál og eru sem slíkar einnig mikilvægar þegar kemur að umhverfisvernd og minni sóun.

Samfélagsleg ábyrgð

Tryggingafélög tryggja verðmætin í lífi fólks og bjóða líka upp á tryggingar sem koma til móts við ófyrirséð áföll og heilsubrest. Þótt það gefi augaleið að forvarnastarf skapi beinan fjárhagslegan ávinning, til dæmis þegar komið er í veg fyrir slys, vinnutap og sóun, þá er mikilvægast að verja líf og heilsu fólks og stuðla að góðu samfélagi. Forvarnir eru í raun félagslegt forgangsmál og eitthvað sem gagnast okkur öllum. Stjórnvöldum og fyrirtækjum ber að sýna samfélagslega ábyrgð og það að setja forvarnir í fyrsta sæti er hluti af þeirri ábyrgð.

Hluti fyrir heild

Ekkert þrífst í tómarúmi og allra síst nú til dags þegar alþjóðasamfélagið er tengdara en nokkru sinni fyrr. Til er regla í jarðfræðinni sem segir: „Náttúran þolir ekki tómarúm“ og er hún til dæmis notuð til að lýsa virkni eldstöðva – þær þenjast út, gjósa og dragast þá saman. Ekkert tómarúm myndast. Aristóteles á að hafa sagt þetta upphaflega og hélt því þá fram að tómarúm færu gegn náttúrulögmálum, þ.e. að rými væru alltaf fyllt af einhverju. „Ekkert“ væri í raun ekki til.

Það skiptir máli í stóra samhenginu hvað við gerum þegar kemur að forvörnum. Við getum haft margfeldisáhrif oft með tiltölulega einföldum aðgerðum, en þær þurfa að vera markvissar og byggðar á gögnum. Í raun er það ungmennafélagsandinn sem hér gildir og felst í að bæta sjálfan sig og samfélagið um leið. Allir þurfa að leggjast á eitt. Þegar kemur að fyrirtækjum og áhrifameiri gerendum í samfélaginu hafa þeir siðferðislega og oft lagalega skyldu gagnvart starfsmönnum sínum og viðskiptavinum er snýr að forvörnum.

Forvarnir fyrir alla

Til eru fjöldamörg samstarfsverkefni um forvarnir og lýðheilsu, á ýmsum sviðum, og snúast þau oft um að fræða og upplýsa. Oft næst mestur árangur þegar ólíkir aðilar taka höndum saman og leggja saman krafta sína, til dæmis stjórnvöld og þriðji geirinn, fyrirtæki og félagasamtök. Forvarnir hafa þá sérstöðu að þær gagnast öllum. Þær eru ekki einkamál og eiga að vera fyrir alla því þar höfum við öll sameiginlegra hagsmuna á gæta. Á upplýsingaöld þar sem aðgengi að alls konar fræðslu, efni og stundum áróðri hefur aldrei verið meira og samskiptaleiðir með fjölbreyttasta móti, er gott að finna málefni sem við getum öll sameinast um. Forvarnir eru slíkt málefni því við viljum öll byrgja brunninn áður en barnið fellur í hann.

Höfundur er verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×