Arnþór sendi fyrirspurn á Þóru Kristínu sem hann sendi jafnframt á alla stjórnarmeðlimi SÁÁ 48 talsins. Vísir hefur fyrirspurnina undir höndum en hún er stutt og svohljóðandi:
„Sæl Þóra Kristín
Meðfylgjandi er skjáskot frá í gær 2. febrúar. Konur sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmilegrar framkomu einhvers frægðarmennis, munu líklega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upplýsingarnar á myndinni gætu þolendurnir verið skjólstæðingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að gerandinn sé Kári Stefánsson. Getur þú staðfest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?
AJ“
Edda Falak auglýsir eftir sögum um mann sem talar mikið um Covid
Skjáskotið sem fylgdi opinni fyrirspurn Arnþórs er orðsending sem Edda Falak hlaðvarpsstjóri sendi inn á Facebook-hópinn Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu.

Eins og sjá má auglýsir Edda eftir frásögnum um ónefndan mann sem hún kallar geranda í vændiskaupum til að styrkja væntanlegt viðtal við fyrrverandi vændiskonu. Arnþór vill fá að vita hvort þar sé um að ræða Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, sem honum sýnist passa við lýsingar Eddu.
Viðbrögð Þóru Kristínar og Kára afdráttarlaus
Viðbrögð Þóru Kristínar sem og Kára, sem á sæti í stjórninni, við þessari óvenjulegu fyrirspurn Arnþórs voru afdráttarlaus. Þau sögðu sig bæði úr stjórninni og Þóra dró framboð sitt umsvifalaust til baka.
Í tilkynningu Þóru Kristínar þar sem hún dregur framboð sitt til baka talar hún almennt um að ekki sé við það búandi að að safnað sé glóðum elds að höfði sínu úr hennar einkalífi og þar sé af nógu að taka enda hafi hún líkt og aðrir sem hafa farið í áfengismeðferð, lent á vegg, sagt og gert hluti sem hún sé ekki stolt af.
„Það er sýnu alvarlegra að fyrrverandi stjórnendur SÁÁ eru líka að hlaða í bálköst á samfélagsmiðlum fyrir Kára Stefánsson yfirmann minn og náinn vin sem hefur einnig gert margt í sinni fortíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og situr líkt og ég í aðalstjórn SÁÁ og er löngu hættur að drekka,“ segir Þóra Kristín.

Ljóst er að allar þessar vendingar hafa valdið verulegu uppnámi í herbúðum SÁÁ en þar á bæ gengu menn út frá því sem vísu að Þóra væri að fara að taka við formennsku en Einar Hermannsson sagði sig frá formennsku eftir að fram kom frásögn fyrrverandi vændiskonu, og skjólstæðingi SÁÁ, að hann hafi notfært sér neyð hennar og keypt af henni vændi.
Kári ekki sá sem er í sigti Eddu Falak
Eftir því sem Vísir kemst næst er nú búist við því að Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi gefi kost á sér í formennskuna til að mæta því neyðarástandi sem ríkir. Fordæmi eru fyrir því að yfirlæknir á Vogi sé jafnframt formaður SÁÁ en sú var staða Þórarins Tyrfingssonar um hríð.
Vísir hefur jafnframt undir höndum bréf sem Frosti Logason sjónvarpsmaður og stjórnarmaður í SÁÁ ritaði þeim sem í stjórninni sitja. Frosti er ómyrkur í máli og ljóst að hann telur, eins og Þóra Kristín, að hópur manna sem tengist Arnþóri vilji vinna samtökunum skaða. Í bréfi Frosta er fullyrt að Edda Falak staðfesti að ekki sé um það að ræða að Kári sé til umfjöllunar í umræddum væntanlegum hlaðvarpsþætti.
Bréf Frosta er svohljóðandi:
Sælir félagar
ég vil upplýsa ykkur aðeins um gang mála.
Þóra Kristín og Kári Stefánsson hafa ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn samtakanna vegna þeirrar ofbeldishegðunar sem Arnþór Jónsson og félagar hafa verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum.
Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur staðfest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stefánsson að ræða í þessum orðrómi um vændiskaup sem hún var að fiska eftir á samfélagsmiðlum.
Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyðileggja fyrir okkar ágætu samtökum og það er miður.
Ég vildi bara hafa ykkur upplýst um þetta.
mbk,
Frosti