Þau mæta öll í beina útsendingu í Pallborðinu hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan tvö.
Beina útsendingu má sjá í spilaranum að neðan og í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi. Þá verður textalýsing frá Pallborðinu hér neðst í fréttinni fyrir þá sem ekki eiga þess kost að hlusta.
Mikil ólga hefur verið innan Eflingar undanfarin misseri og raunar má segja að gustað hafi um félagið allt frá því Sólveig Anna Jónsdóttir var fyrst kjörin formaður félagsins árið 2018. Hún kom eins og stormsveipur til forystu í þessu öðru fjölmennasta stéttarfélagi á almennum vinnumarkaði með rúmlega 27 þúsund félagsmenn.

Félagið boðaði til verkfalla í aðdraganda lífskjarasamninganna svo kölluðu og margir þakka forystu hennar innan Eflingar og Ragnars Þórs Ingólfssonar í forystu fjölmennasta félagsins VR fyrir þann árangur sem náðist með samningunum varðandi kjör þeirra lægst launuðu.

Það gekk hins vegar á ýmsu innan Eflingar allt frá því Sólveig Anna tók við forystu í félaginu. Hún var þó endurkjörin formaður árið 2020. Átökin á skrifstofu félagsins héldu þó áfram og leiddu meðal annars til þess að fjörtíu af um fimmtíu starfsmönnum hættu störfum með ýmsum formerkjum í stjórnartíð Sólveigar Önnu og Víðis.
Í lok október sauð endanlega uppúr þegar starfsfólk varð ekki við ósk Sólveigar Önnu um að samþykkja stuðningyfirlýsingu við hana. Hún sagði af sér eftir það og Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri félagsins og hennar aðal stuðningsmaður sagði upp störfum.

Eftir það var Ólöf Helga Adolfsdóttir skipuð tímabundið í embætti varaformanns félagsins. Hún komst í kastljós fjölmiðla þegar Efling undir forystu Sólveigar Önnu mótmælti uppsögn hennar hjá Air Iceland Connect (nú innanlandsflug Icelandair). Þar hafði hún starfað sem hlaðmaður og var jafnframt trúnaðarmaður starfsfólks. Nú er hún formannsefni uppstillingarnefndar Eflingar.
Guðmundur Baldursson stjórnarmaður í Eflingu komst í umræðuna þegar hann krafðist þess að forysta félagsins afhenti honum samantekt þriggja trúnaðarmanna á skrifstofu Eflingar um líðan starfsfólks sem send var Viðari og Sólveigu Önnu. Hann taldi sig eiga rétt á því að fá þessar upplýsingar í ljósi setu sinnar í stjórn félagsins. Þeirri ósk var hafnað.

Guðmundur var upphaflega í stuðningsliði Sólveigar Önnu þegar hún bauð sig fyrst fram til formennsku en varð síðar einn aðal gagnrýnandi starfshátta hennar og Viðars. Nú býður hann fram sjálfstæðan framboðslista til forystu í Eflingu.
Kosningarnar hjá Eflingu verða rafrænar og hefjast klukkan 9 í fyrramálið og standa til klukkan 20 hinn 15. febrúar. Einnig verður hægt að kjósa á skrifstofu félagsins í Guðrúnartúni og skrifstofu Eflingar að Breiðmörk 19 í Hveragerði. Á báðum stöðum er opið frá miðvikuddeginum 9. febrúar til sunnudagsins 13. febrúar frá klukkan 09.00 til 15.00 og mánudaginn 14. og þriðjudaginn 15. febrúar frá klukkan 09.00 til 20.00.
Pallborðið hefst í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00.