Eyjamenn og Framarar fengu margra milljóna reikning í bakið Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2022 15:01 Gilson Correia kom til ÍBV 2019 en spilaði aðeins ellefu leiki. Fred kom til Fram 2018 og var í lykilhlutverki við að koma liðinu upp í úrvalsdeild í fyrra. Eyjamenn og Framarar voru krafðir um vel á annan tug milljóna króna eftir að hafa fengið leikmenn án þess að greiða uppeldisbætur til uppeldisfélaga þeirra. Kostnaður ÍBV nam 17 milljónum króna auk lögfræðikostnaðar.
Þetta kom fram í máli Birgis Ólafs Helgasonar í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag. Birgir fjallaði um reglur FIFA um uppeldis- og samstöðubætur, með hliðsjón af íslenskri knattspyrnu, í meistaraverkefni sínu við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Birgir sagði ljóst að íslensk félög væru ekki alltaf meðvituð um sínar skyldur og sín réttindi þegar kæmi að uppeldis- og samstöðubótum. Hann nefndi sérstaklega mál Gilson Correia sem kom frá Portúgal til ÍBV í mars 2019. Correia er fæddur árið 1997 og var því undir 23 ára aldri þegar hann kom til ÍBV, sem þýðir að uppeldisfélög hans gátu gert kröfu um uppeldisbætur. Sitja eftir með sautján milljóna króna tap út af leikmanni sem lék ellefu leiki Correia, sem lék aðeins ellefu leiki fyrir ÍBV, kostaði Eyjamenn því á endanum afar háar fjárhæðir: „Það er leitt að segja það en Eyjamenn voru ekki nægilega vel fræddir um þessar reglur,“ sagði Birgir en uppeldisbætur verður að greiða til þeirra félaga sem leikmenn spila hjá frá 12-23 ára aldurs. Það er svo að uppeldisfélög missi leikmenn ekki frítt frá sér, heldur njóti góðs af því að hafa þjálfað leikmanninn. „Það sem gerist í kjölfarið á því að hann skrifar undir samning við Eyjamenn er að portúgölsku uppeldisfélögin hans, sem voru nota bene níu talsins, hafa samband og gera kröfu um uppeldisbætur,“ sagði Birgir en portúgölsku félögin leituðu réttar síns hjá FIFA. Dr. Football Podcast · Doc Sports Business -Hvernig kæruleysi og þekkingarleysi hefur kostað ÍBV, Selfoss og Fram milljónir „Það fóru mál fjögurra félaga fyrir FIFA og þrjú þessara mála töpuðust af hálfu ÍBV. Eyjamenn reyndu að halda því fram að leikmaðurinn væri bara áhugamaður hjá þeim, ekki atvinnumaður, en þegar leikmenn spila í efstu deild á Íslandi fara þeir á leikmannasamning og það er atvinnumannasamningur í skilningi reglna FIFA. Til að gera langa sögu stutta þá sitja Eyjamenn eftir með 17 milljóna króna tap út af þessum leikmanni,“ sagði Birgir. Við þessa upphæð bætist lögfræðikostnaður en ÍBV leitaði til alþjóða íþróttadómstólsins, CAS, en hafði ekki erindi sem erfiði. „Þetta er skólabókardæmi um það hve mikilvægt er að átta sig á því að þegar samið er við erlendan leikmann þá þarf að gæta að því að þú gætir þurft að greiða uppeldisbætur,“ sagði Birgir. Framarar náðu að prútta Sambærilegt dæmi er frá því að Framarar fengu til sín Brasilíumanninn Frederico Bello Saraiva, eða Fred eins og hann er kallaður. Fred kom til Fram vorið 2018 en er fæddur árið 1996 og var því ekki orðinn 24 ára gamall. Hann er enn leikmaður Fram og átti sinn þátt í að koma liðinu upp í úrvalsdeild í fyrra þegar hann skoraði 8 mörk í 20 deildarleikjum. En þegar öðru tímabili Fred með Fram var að ljúka, sumarið 2019, fengu Framarar bréf frá þýskri lögmannsstofu sem fyrir hönd tveggja brasilískra félaga benti þeim á að þeir þyrftu að borga uppeldisbætur: „Þetta var reikningur upp á vel yfir tíu milljónir. Tólf, þrettán eða jafnvel fjórtán milljónir,“ sagði Birgir. „En Framarar voru reyndar klókir. Þeir fóru ekki fyrir CAS eins og ÍBV en höfðu samband við lögmennina í Þýskalandi sem gættu hagsmuna brasilísku félaganna, og færðu rök fyrir því að fjárhæðin væri upp úr öllu valdi fyrir félag eins og Fram, og að þeir hefðu alls ekki átt von á þessu. Þeir náðu að prútta verðmiðann aðeins niður, um einhver 30 prósent, sem bjargaði þeim frá enn stærra tapi,“ sagði Birgir og bætti við að mögulega gætu Eyjamenn náð að semja um lægri greiðslu. Þá hafi Þróttur Reykjavík lent í sambærilegu máli árið 2019 vegna Rafaels Victor, sem skoraði 12 mörk í 21 deildarleik með liðinu í 1. deildinni, en reikningur Þróttar vegna þess nam um það bil 50.000 evrum sem í dag jafngildir sjö milljónum króna.
Pepsi Max-deild karla Lengjudeild karla ÍBV Fram Þróttur Reykjavík Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Enski boltinn Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Enski boltinn Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Rodgers á leið til Sádi-Arabíu Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Keyptu nýjan leikvang fyrir Glódísi og Bayern-konurnar Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Sjá meira