Innlent

Fjórar líkamsárásir og vinnuslys

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Það var nóg að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt.
Það var nóg að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og nótt, meðal annars nokkrum er tengdust líkamsárásum. 

Kvöldið hófst um klukkan 17.30 þegar einstaklingur gaf sig fram á lögreglustöð og sagðist hafa orðið fyrir líkamsárás. Ekkert fleira stendur um atvikið í samantekt úr dagbók lögreglu en um klukkan 19.30 var tilkynnt um aðra líkamsárás í póstnúmerinu 111 og í því tilviki var þolandinn fluttur á Landspítalann til aðhlynningar.

Upp úr klukkan 23 barst þriðja beiðni kvöldsins um aðstoð vegna líkamsárásar og hótana og þá var tilkynnt um fjórðu líkamsárás í póstnúmerinu 105 hálftíma seinna en í því tilviki var gerandi handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu. 

Lögregla og sjúkrabifreið voru einnig kölluð út að veitingastað rétt fyrir klukkan 19 þar sem starfsmaður hafði slasað sig. Lögregla kannaði aðstæður á vettvangi og skýrsla verður rituð um málið. 

Þá var einstaklingur handtekinn rétt fyrir klukkan 22 fyrir að hafa í hótunum og fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Hann var vistaður í fangageymslu. Annar var síðan handtekinn rétt fyrir klukkan 1 í nótt fyrir að hafa í hótunum í póstnúmerinu 107.

Lögregla hafði einnig afskipti af manni sem svaf í bifreið en hann reyndist vera með fíkniefni í fórum sínum. Þá var annar ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum en sá reyndi að ljúga til um nafn og reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×