Rokkstjörnur krullunnar slá í gegn á ÓL og vilja að Will Ferrell geri mynd um sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2022 09:30 Matt Hamilton er staðráðinn í því að hafa gaman þegar hann keppir í krullu á Ólympíuleikunum. Þótt gleðiin sé í fyrirrúmi þá eru á ferðinni krullarar í allra fremstu röð sem eiga Ólympíuverðlaun að verja. AP/Brynn Anderson Bandaríska krulluliðið hefur vakið mikla athygli á Vetrarólympíuleikunum í Peking fyrir klæðnað sinn og útlit enda sumir þeirra líkari rokkstjörnum en íþróttamönnum í fremstu röð.
Sá sem hefur fengið mesta athyglina er Matt Hamilton sem er oftast bara kallaður „Mattey“ en þessi 32 ára gamli krullari er með yfirvaraskegg, sítt hár, derhúfu, tattú og mætir alltaf til leiks í litríkum skóm. Curlingens rockstars har blivit virala lika sköna som de ser ut: Curling kan definitivt vara rock'n'roll https://t.co/Nfg9U5F0Ic— Sportbladet (@sportbladet) February 14, 2022 „Stíllinn okkar er svolítið „klikkaðir og skemmtilegir“. Við viljum vera örlítið öðruvísi,“ sagði Matt Hamilton í viðtali við sænska Aftonbladet. Í krulluliði Bandaríkjanna eru þeir Matt Hamilton, Chris Plys, John Shuster, John Landsteiner og Colin Hufman. Það er áberandi að þar fara menn sem taka sjálfa sig ekki of alvarlega og leggja mikla áherslu að njóta og hafa gaman. Það má líkja sumum þeirra við bandarísku stereótýpuna úr miðvesturríkjunum sem er mættur í keilusalinn eftir langan vinnudag. „Það fer ekkert á milli mála að við erum að vekja athygli fyrir stílinn okkar. Okkur finnst þetta mjög skemmtilegt og við viljum gefa þessu smá lit,“ sagði Mattey. „Krullan getur án efa verið rokk og ról. Það eru margir sem eru að spila eftir bókinni en ég er miklu frjálsari og sneggri þegar ég er að keppa. Ég vona að fólk taki eftir mér í sjónvarpinu en ég veit líka að fólki annað hvort líkar við mig eða líkar alls ekki við mig,“ sagði Matt. View this post on Instagram A post shared by Sportbladet (@sportbladet) Svo langt er áhuginn kominn á bandarísku rokkstjörnum krullunnar að sumir á samfélagsmiðlum vilja sjá gerða Hollywood mynd með bandarísku krullurunum. „Það væri nú eitthvað fyrir Will Ferrell. Ef einhver gæti gert það þá væri það hann,“ sagði Matt léttur. Matt Hamilton vekur líka sérstaka athygli fyrir litríku skóna sína. „Ég hafði eins og allir aðrir spilað í svörtum skóm en mér finnst þeir bara vera svo litlausir og leiðinlegir. Þessir skór henta persónuleika mínum fullkomlega. Þegar ég sá þá fyrst var enginn vafi í mínum huga að ég ætti að nota þá sem keppnisskó. Ég er með þannig fótaburð að ég get notað alla skó,“ sagði Hamilton. Kapparnir eru ekki aðeins litríkir því þeir eru mjög góðir líka. Liðið varð Ólympíumeistari í Pyeongchang fyrir fjórum árum. Eftir Ólympíuleikana segist Matt Hamilton ætla að klippa af sér allt hárið og gefa í fjáröflun fyrir krabbameinssamtök. View this post on Instagram A post shared by The Olympic Games (@olympics)
Vetrarólympíuleikar 2022 í Peking Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Sjá meira