Innlent

Hæglætis veður víðast hvar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Veðrið ætti að vera með rólegasta móti á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Veðrið ætti að vera með rólegasta móti á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Vilhelm

Norðaustan og austanlands er allhvöss austanátt algeng með snjókomu eða slyddu, en það dregur úr vindi og úrkomu á þessum slóðum eftir hádegi. Í öðrum landshlutum verður vindur fremur hægur í dag, en búast má við éljum á stöku stað.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands þar sem farið er yfir veðurhorfur dagsins og næstu daga.

Útlit er fyrir snjókomu með vesturströndinni í kvöld og fram á nótt úr bakka sem verður viðloðandi á þeim slóðum. Það verður frost á landinu í dag, á bilinu 0 til 5 stig.

Á morgun er þó spáð hæglætisveðri víðast hvar og éljum í flestum landshlutum. Síðdegis verður þó væntanlega orðið úrkomulaust að kalla á Suður- og Vesturlandi. Herðir heldur á frostinu.

Veðurhorfur á landinu

Austan 10-18 m/s norðaustan- og austanlands og snjókoma eða slydda. Dregur úr vindi og úrkomu á þessum slóðum eftir hádegi. Fremur hæg breytileg átt í öðrum landshlutum, skýjað með köflum og stöku él. Snjókoma með vesturströndinni í kvöld. Frost 0 til 5 stig.

Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s á morgun og él, en úrkomulaust að kalla á Suður- og Vesturlandi undir kvöld. Kólnar heldur í veðri.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Éljagangur norðaustan- og austanlands. Skýjað með köflum í öðrum landshlutum og él á stöku stað. Frost 1 til 7 stig.

Á föstudag:

Austlæg átt 3-10 og líkur á dálitlum éljum, einkum við ströndina. Frost 2 til 10 stig, kaldast inn til landsins.

Á laugardag:

Vaxandi austanátt, 15-23 á sunnanverðu landinu síðdegis og snjókoma með köflum, hvassast með ströndinni. Austan 8-15 norðantil og úrkomulaust. Hiti frá frostmarki syðst, niður í 10 stiga frost í innsveitum fyrir norðan.

Á sunnudag:

Norðaustan 10-18 og él, en léttir til um landið suðvestanvert. Hægari vindur um kvöldið. Frost 1 til 7 stig.

Á mánudag og þriðjudag:

Austlæg eða breytileg átt og líkur á snjókomu í flestum landshlutum. Frost 1 til 8 stig, kaldast fyrir norðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×