Viðbrögð fjölmiðla þegar blaðamenn eru til rannsóknar Eva Hauksdóttir skrifar 21. febrúar 2022 11:30 Fjórir blaðamenn hafa nú stöðu sakborninga, grunaðir um brot gegn friðhelgi einkalífs. Þetta er mjög sérstakt. Venjulega höfða þeir einkamál sem telja blaðamenn hafa brotið gegn sér og almennt er erfitt að fá lögreglu til að rannsaka brot gegn friðhelgi einkalífs nema húsbrot, þjófnaður eða ofbeldi komi við sögu. Blaðamenn virðast upp til hópa ganga út frá því að meint brot gegn friðhelgi einkalífs varði umfjöllun sakborninga um skipulagðar ofsóknir í garð blaðamanna í kjölfar Samherjamálsins. Rannsókn málsins feli í sér pólitískar ofsóknir lögreglu gegn blaðamönnum sem hafi unnið sér það eitt til óhelgi að hafa flutt sannar fréttir af lögbrotum og siðleysi stórfyrirtækis, auk þess að hafa fjallað um “skæruliðadeild Samherja”. Það eru þó engar áreiðanlegar upplýsingar komnar fram um að lögreglurannsóknin snúist um fréttaflutninginn sem slíkan. Það er heldur ekki gefið að hér sé um að ræða valdníðslu af hálfu lögreglu. Ég er ekki að útiloka það, heldur að benda á það sem enginn marktækur fjölmiðill hefur fjallað um — að það kunni að vera réttmæt ástæða fyrir rannsókninni. Brot gegn friðhelgi einkalífs Brot gegn friðhelgi einkalífs eru af ýmsum toga. Þau geta m.a. falist í ærumeiðandi ummælum eða myndbirtingum. Slík brot geta líka m.a. falist í ólögmætri vöktun, heimildarlausri söfnun og dreifingu upplýsinga sem heyra undir persónuverndarlög eða í því að hnýsast í einkagögn. Bloggarinn Páll Vilhjálmsson hefur fullyrt að fréttamenn hafi vitað að einhver ætlaði að gera Páli Steingrímssyni mein í þeim tilgangi að komast yfir símann hans. Þeir hafi nýtt sér þá vitneskju og að síminn hafi verið afritaður í Efstaleitinu, þar sem RUV er til húsa. Páll hefur ekki bent á nein gögn sem styðja þessa sögu og hún virðist nokkuð ævintýraleg. En sé eitthvað hæft í henni gæti það skýrt þá staðreynd að lögreglan er með til rannsóknar meint brot blaðamanna gegn friðhelgi einkalífs. Reyndar er ekkert sérstakt sem bendir til þess að rannsóknin varði umfjöllun fjölmiðla um Samherja og “skæruliðadeildina” eins og haldið hefur verið fram. Það lítur miklu frekar út fyrir að það sé ólögleg gagnaöflun sem er til rannsóknar. Einn sakborninga í málinu, Þórður Snær Júlíusson, hefur gefið til kynna að rannsóknin beinist að brotum gegn 228. og 229. gr. alm. hgl. Þau lagaákvæði lúta ekki að óvæginni eða ærumeiðandi fjölmiðlaumfjöllun heldur ólögmætri gagnaöflun og dreifingu. Umræddum lagaákvæðum var af hálfu löggjafans ætlað að bregðast við stafrænu ofbeldi, einkum kynferðisofbeldi, og þeim veruleika að einkalíf manna fer nú að verulegu leyti fram í gegnum raftæki og internet. Það er þó ekkert nýtt að einkalíf fólks sé talið verðskulda vernd. Áður voru það dagbækur, einkabréf, persónulegar myndir og hirslur í einkaeigu sem talin var þörf á að vernda. Í dag erum við með slík gögn í símum og tölvum. Þótt samúð með fórnarlömbum stafræns kynferðisofbeldis hafi verið hvatinn að þessum lagabreytingum ná ákvæðin samkvæmt orðanna hljóðan til allra einkamálefna. Er lögreglurannsókn réttlætanleg? Í umræðum á samfélagsmiðlum hefur borið nokkuð á þeirri hugmynd að lögreglan hljóti að vera á villigötum enda geti símastuldur ekki talist brot gegn friðhelgi einkalífs. Lögreglan ætti því að vera að eltast við símaþjóf en láta heiðarlega blaðamenn í friði. En í þessu tilviki er ekki langsótt að flokka brottnám símans sem friðhelgisbrot. Til þess að brot teljist þjófnaður í skilningi laga þarf auðgunartilgangur að búa að baki. Hér virðist sem sími hafi verið tekinn, ekki í þeim tilgangi að nota hann eða selja, heldur aðeins í þeim tilgangi að ná í gögn og skila honum svo aftur. Þar með er ekki um að ræða auðgunarbrot heldur brot gegn friðhelgi einkalífs. Ef blaðamennirnir hafa vitað það eða tekið þátt í því þá er það hylming eða hlutdeild í því broti. Svo er líklegt að á símanum hafi verið gögn sem koma málinu ekkert við og það er ekkert útilokað að grunur um að viðkvæm persónuleg gögn væru enn í fórum blaðamanna hafi spilað inn í ákvörðun um að hefja lögrannsókn. Ef blaðamenn hafa ekki fengið í hendur gögn af símanum heldur læst tæki, þá er gæti það líka hafa átt þátt í þeirri ákvörðun. Ef það er rétt að rannsóknin varði meint brot gegn 228. gr. og 229. gr. alm. hgl. þá er ekki hægt að fullyrða að um sé að ræða ofsóknir gegn blaðamönnum og sannleikanum. Samkvæmt 2. mgr. 229. gr. getur verið réttlætanlegt að afla gagna með því að verða sér úti um aðgang að gögnum annarra á tölvutæku formi. Ef blaðamenn hafa nýtt sér gögn af síma Páls Steingrímssonar þá gæti þetta undantekningarákvæði vel átt við. Umfjöllun fjölmiðla um “skæruliðadeild Samherja” sneristekki um einkamál eins eða neins, heldur um áróður og ofsóknir gegn blaðamönnum. Sú umfjöllun átti sannarlega erindi við almenning. Það er hinsvegar ekki hlutverk lögreglu að ákveða að óskoðuðu máli að gagnaöflun hafi verið réttlætanleg með tilliti til almannahagsmuna. Lögreglu ber, lögum samkvæmt, að rannsaka mál þegar fyrir liggur rökstuddur grunur um refsivert brot. Það er svo ekki fyrr en rannsókn lýkur sem tekin er afstaða til þess hvort brot hafi verið framið. Engin rannsóknarblaðamennska Páll Vilhjálmsson er ekki áreiðanlegur heimildamaður en sakborningar geta heldur ekki talist áreiðanlegir heimildamenn um rannsókn sem snýr að þeim. Ekkert bólar á hlutlausri fjölmiðlaumfjöllun. Kannski er ekki við því að búast þegar þeir fáu rannsóknarblaðamenn sem starfa á Íslandi eru ýmist með stöðu sakborninga eða nánir samstarfsmenn þeirra sem eru til rannsóknar. Afleiðingarnar eru þær að stór hluti þjóðarinnar trúir því að yfirheyrslunar varði fjölmiðlaumfjöllun um Samherja og “skæruliðadeildina”, án þess að hafa annað fyrir sér í því en orð sakborninga um að umfjöllun þeirra hafi átt erindi við almenning. Annar hluti þjóðarinnar, en áreiðanlega mun minni, trúir því að blaðamenn hafi átt aðild að símaþjófnaði og mögulega morðtilraun. Reyndar voru það virtir blaðamenn sem lögðu Páli Vilhjálmssyni þau orð í munn að blaðamenn hefðu eitrað fyrir skipstjóranum og stolið símanum hans, mér vitanlega hefur hann ekki haldið því fram sjálfur. Þvert á móti tók hann fram í viðtali á Útvarpi Sögu að hann væri ekki að segja að blaðamenn hefðu eitrað fyrir Páli Steingrímssyni, heldur að þeir hefðu vitað að hann yrði “óvígur” á tilteknum tíma og að síminn hafi verið afritaður í Efstaleitinu. Einnig hefur hann sagt að einhver nákominn Páli skipstjóra hafi stolið símanum hans og sú lýsing á ekki við um blaðamenn. Það er því ýmislegt sem ekki er rétt eftir honum haft. Ef fullyrðingar um að blaðamenn hafi vitað að skipstjórinn yrði “óvígur”, og að þeir hafi afritað gögnin með leynd, eru ekkert annað en heilaspuni Páls Vilhjálmssonar þá er það í sjálfu sér brot gegn friðhelgi einkalífs. Nánar tiltekið ærumeiðandi aðdróttun í garð þeirra blaðamanna sem stóðu að fréttaflutningi um “skæruliðadeildina”. Blaðamenn gætu þá átt bótakröfu á Pál vegna meiðyrða og á ríkið vegna tilefnislausra ofsókna lögreglu. En ef einhver flugufótur er fyrir þessu þá breytir það ýmsu. Ef það er rétt að brotist hafi verið inn í símann að undirlagi blaðamanna, þá er það í meira lagi vafasamt. Blaðamenn hafa ekki slíkar heimildir, ekki frekar en þeir hafa heimild til húsleitar eða til að handtaka og yfirheyra þá sem grunaðir eru um að hafa brotið af sér. Það gæti þó verið réttlætanlegt ef blaðamenn hafa haft ástæðu til að ætla að á símanum væru vistaðar upplýsingar sem áttu erindi við almenning. En vissu þeir það? Getur verið að það sé einmitt það sem lögreglurannsóknin snýst um — hvort skilyrði þess að víkja frá meginreglu um friðhelgi einkalífs hafi verið uppfyllt? Í þeirri umfjöllun sem fjölmiðlar hafa boðið upp á síðustu daga er ekkert á það minnst hvaða valkostir eru í stöðunni þegar maður leitar til lögreglunnar og skýrir frá grun um að gögn úr símanum hans séu í höndum óviðkomandi. Að auk gagna sem ætla megi að verði nýtt til fréttaflutnings megi ætla að óviðkomandi hafi nú afrit af einkasamtölum hans við fjölskyldu og vini, sjúkraupplýsingar, ljósmyndir úr einkasamkvæmum, upplýsingar um einkamál annarra í fjölskyldunni o.s.frv. Ætti lögreglan að neita að rannsaka hvort löglega hafi verið staðið að gagnaöflun og hvort gögnum sem ekki koma málinu við hafi verið eytt eða dreift? Því miður er ekki útlit fyrir að neinn marktækur fjölmiðill ætli að skoða möguleikann á því að eitthvað annað og geðslegra en ofsóknir í garð blaðamanna séu helsti drifkraftur lögreglunnar. Ég árétta að ég er ekki að fullyrða neitt um atvik þessa máls. Það eina sem ég fullyrði er að fréttaflutningur af því er grunnur, einhliða, ofsafenginn og lítt til þess fallinn að upplýsa almenning um nokkuð sem máli skiptir. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Hauksdóttir Fjölmiðlar Samherjaskjölin Mest lesið Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Sjá meira
Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson Skoðun