Innlent

Bein útsending: Blaða­manna­fundur sendi­herra Úkraínu

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi.
Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi. aðsend

Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, býður íslenskum fjölmiðlum til blaðamannafundar síðdegis í dag.

Fundurinn fer fram í utanríkisráðuneytinu og hefst kl. 16:15.

Dibrova hefur aðsetur í Helsinki en er stödd hér á landi til að afhenda forseta Íslands trúnaðarbréf. Meðan á dvölinni stendur hittir hún forsætisráðherra, utanríkisráðherra og þingmenn, auk forseta Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×