AC Milan styrkti stöðu sína á toppnum með naumum sigri Arnar Geir Halldórsson skrifar 12. mars 2022 21:48 Pierre Kalulu skoraði sitt fyrsta mark fyrir AC Milan í kvöld. Hér fagnar hann ásamt Fikayo Tomori. vísir/Getty Topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar, AC Milan, lét eitt mark duga þegar liðið fékk Empoli í heimsókn í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Það var skorað af franska varnarmanninum Pierre Kalulu strax á nítjándu mínútu og dugði AC Milan til sigurs í leiknum. Með sigrinum jók AC Milan forystu sína á toppi deildarinnar upp í fimm stig en nágrannar þeirra í Inter Milan eru í öðru sæti og eiga tvo leiki til góða. Ítalski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn