Towns skoraði 60 stig og tók 17 fráköst þegar Timberwolves vann 149-139 sigur á Spurs.
Þetta er auðvitað það mesta sem leikmaður hefur skorað í deildinni í einum leik í vetur og sló Towns út þá LeBron James og Trae Young sem báðir höfðu náð að skora 56 stig í einum leik.
SIXTY POINTS FOR KAT
— NBA (@NBA) March 15, 2022
60 PTS is the NBA season-high by any player & a @Timberwolves franchise record. pic.twitter.com/ipJn56KSK5
Towns varð enn fremur sá fyrsti til að ná 60 stigum og tók 17 fráköstum í leik síðan að Shaquille O'Neal var með 61 og 23 fyrir Los Angeles Lakers 6. mars 2000. Þá hafa aðeins fimm leikmenn náð 60 stigum og 15 fráköstum í leik síðustu fimmtíu ár en hinir þrír eru James Harden (2019), Michael Jordan (1990) og Karl Malone (1990).
„Ég sagði við þjálfarann fyrir leikinn: Heyrðu við þurfum þennan sigur. Ég mun gera allt sem ég get til þess. Ef ég þarf að spila 44 eða 48 mínútur þá mun ég gera það. Það var hugarfar mitt sem ég kom inn í leikinn með. Ég varð að dóminera í þessum leik. Ég varð að spila minn besta leik,“ sagði Karl-Anthony Towns.
FAMILY pic.twitter.com/2G8feea3v0
— Minnesota Timberwolves (@Timberwolves) March 15, 2022
Þetta er stigamet hjá félaginu en Towns hitti úr 19 af 31 skoti sínu í leiknum, þar af 7 af 11 þriggja stiga skotum. Hann setti einnig niður 15 af 16 vítum sínum.
Þessi frammistaða Town stal náttúrulega sviðsljósinu af öllum leikjum næturinnar en það voru fleiri að spila mjög vel.
"Here comes DLo!"
— NBA (@NBA) March 15, 2022
D'Angelo Russell joins KAT's 60 point celebration! pic.twitter.com/zw58pDIkBb
Trae Young skoraði 46 stig í sigri Atlanta Hawks á Portland Trail Blazers, daginn eftir að hann skoraði 47 stig í sigri á Indiana. Young var einnig með 12 stoðsendingar en hann er fyrsti leikmaðurinn í NBA í vetur sem skorað fjörutíu stig eða meira tvö kvöld í röð.
Jokic knocked down an absolute circus-shot in the clutch! pic.twitter.com/nmtpkQHS4I
— NBA (@NBA) March 15, 2022
Nikola Jokic fagnaði sigri í uppgjörinu á móti Joel Embiid en flestir telja að þeir séu líklegastir til að vera kosnir mikilvægustu leikmenn deildarinnar. Jokic var með 22 stig, 13 fráköst og 8 stoðsendingar í 114-110 sigri Denver Nuggets liðsins á útivelli á móti Philadelphia 76ers.
Embiid skoraði 34 stig og James Harden var með 24 stig, 11 stoðsendingar og 9 fráköst. 76ers byrjaði vel þá Embiid og Harden en þetta var þriðja tap liðsins í síðustu þremur leikjum. Denver endaði aftur á móti tveggja leikja taphrinu með þessum sigri.
Steph, Draymond, and Klay share a moment after Steph drops 47 points on his birthday! #DubNation pic.twitter.com/pJTXoP5Bed
— NBA (@NBA) March 15, 2022
Stephen Curry var með 47 stig á aðeins 35 mínútum þegar Golden State Warriors vann 126-112 sigur á Washington Wizards en hann hitti meðal annars úr 7 af 14 þriggja stiga skotum sínum og var líka með 6 stoðsendingar og 6 fráköst. Curry átti einmitt afmæli í gær og hélt upp á það með þessum frábæra hætti.
45 points for the Birthday Boy!
— NBA (@NBA) March 15, 2022
Steph is having a birthday party in the Bay
Watch Now on NBA League Pass: https://t.co/oz9UCQxdQa pic.twitter.com/rrk3YqSIgU
LeBron James þarf helst að skora fimmtíu stig svo Los Angeles Lakers liðið vinni þessa dagana og því dugðu 30 stig ekki á móti Toronto Raptors. Raptors vann leikinn með ellefu stigum, 114-103 þar sem Gary Trent Jr. skoraði 28 stig og Pascal Siakam var með 27 stig, 11 fráköst og 5 stoðsendingar.
- Úrslitin í NBA-deildinnni í nótt:
- San Antonio Spurs - Minnesota Timberwolves 139-149
- Golden State Warriors - Washington Wizards 126-112
- Philadelphia 76ers - Denver Nuggets 110-114
- Cleveland Cavaliers - Los Angeles Clippers 120-111 (framlengt)
- Atlanta Hawks - Portland Trail Blazers 122-113
- Oklahoma City Thunder - Charlotte Hornets 116-134
- Sacramento Kings - Chicago Bulls 112-103
- Utah Jazz - Milwaukee Bucks 111-117
- Los Angeles Lakers - Toronto Raptors 103-114