Innlent

Þrjú börn hafa flúið Úkraínu hingað án forráðamanns

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Jón Pétur Jónsson, sviðsstjóri landamærasviðs Ríkislögreglustjóra.
Jón Pétur Jónsson, sviðsstjóri landamærasviðs Ríkislögreglustjóra.

Þrjú börn frá Úkraínu eru í umsjón barnaverndarnefnda eftir að þau komu án forráðamanna til landsins. Eftirlit hefur verið aukið á landamærunum vegna aukinnar hættu á mansali með flóttafólk.

Frá því innrás Rússa hófst í Úkraínu hafa 377 einstaklingar frá landinu sótt um vernd hér á landi. Á næstu vikum er búist við 400 til 900 manns til viðbótar .

Alþjóðlegaflóttamannastofnunin hefur uppfært áætlun sína um fjölda þeirra sem talin er að muni flýja átökin í fimm milljónir en áður var áætlað að hann yrði um fjórar milljónir. Samfara auknum flóttamannastraumi hafa komið upp tilfelli mansals aðalega í Póllandi þar sem 3,4 milljónir hafa þegar flúið til.

„Það eru farnar að koma staðfestingar á því að slík mál hafi komið upp erlendis,“ segir Jón Pétur Jónsson, sviðsstjóri landamærasviðs Ríkislögreglustjóra „Það eru þegar óprúttnir aðilar eru sannarlega að nýta sér neyð þessa fólks.“

Jón Pétur segir mikilvægt að fólk viti af þessari hættu.

„Við þurfum öll að vera á varðbergi gagnvart þessu þegar kemur að smygli á fólki og mansali. Ég veit til dæmis flugrekstraraðilar hafa brýnt fyrir sínu fólki að þekkja einkenni mansals, og ég veit líka að Isavia hefur gert það gagnvart sínu starfsfólki sem starfar í flugstöðinni,“ segir Jón Pétur.

Hann segir að ekkert slíkt tilvik hafi komið upp hér enn sem komið er, en hins vegar séu þrjú börn í umsjón barnaverndarnefnda þar sem þau hafi komið hingað frá Úkraínu án forráðamanna. Eitt hafi komið á eigin vegum en hin tvö í fylgd með fullorðnum einstaklingum.

„Barnaverndaryfirvöld í Sandgerðisbæ, Reykjanesbæ og Hafnarfirði hafa komið að þeim málum og eru að hjálpa okkur að vinna í því,“ segir Jón Pétur.

Málin séu í rannsókn.

„Ef að eitthvað greinist sem er ólögmætt á bak við þetta þá stígur lögregla inn í það.“


Tengdar fréttir

Sjálfboðaliðar hafi lyft grettistaki við mótttöku flóttamanna

Hátt í þrjúhundruð sjálfboðaliðar halda utan um mötuneyti, hópferðabíla, barnapössun og fleira fyrir flóttafólk frá Úkraínu. Talsmaður hópsins segir ótrúlegt að sjá kraftinn í hópnum meðan Útlendingastofnun dragi lappirnar varðandi ýmsa grunnþjónustu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×