Sú eldflaug er þó einnig langdrægin, eins og Hwasong-17, en tilraunaskot þeirrar síðarnefndu hafði misheppnast skömmu áður.
Þetta hefur Reuters fréttaveitan eftir heimildarmanni úr varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu en sá segir Bandaríkjamenn hafa komist að sömu niðurstöðu.
Eldflaugin sem skotið var á loft þann 24. mars lenti í sjónum undan ströndum Japans, innan lögsögu ríkisins. Ríkismiðlar Norður-Kóreu sögðu hana hafa farið í rúmlega sex þúsund kílómetra hæð og lent rúmum þúsund kílómetrum frá skotstað.
Reuters segir það í samræmi við greiningu herja Suður-Kóreu og Bandaríkjanna og er eldflaugin talin geta farið allt að þrettán þúsund kílómetra.
Sjá einnig: Stærstu eldflaug Norður-Kóreu skotið á loft
Nokkrum dögum áður eða þann 16. mars, hafði Hwasong-17 eldflaug sprungið í loft upp skömmu eftir flugtak og brak úr eldflauginni féll til jarðar í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu. Yfirvöld í einræðisríkinu hafa þó enn ekki staðfest að þessi tilraun hafi átt sér stað eða viðurkennt að hún hafi misheppnast.
Norður-Kórea birti í kjölfar nýjasta skotsins myndir og myndband sem átti að sýna Kim og eldflaugina sem skotið var á loft. Í myndefninu var sýnd Hwason-17 eldflaug.
Greinendur hafa bent á að ósamræmi sé í myndbandinu varðandi veður, skugga og önnur atriði sem gefi til kynna að það hafi verið samsett og mögulega hafi myndefnið af skotinu sjálfu verið af skotinu sem misheppnaðist.
Reuters vitnar í skýrslu sem varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu sendi þingi ríkisins en þar segir að ríkisstjórn Kim hafi að hluta til skotið Hwasong-15 eldflaug á loft og sviðsett skot Hwasong-17 til að bæta stöðu ríkisins í viðræðum við Suðru-Kóreu, Bandaríkin og alþjóðasamfélagið og bæta ímynd þess.