Lögreglan beitti táragasi á reiða stuðningsmenn Nígeríu sem réðust inn á völlinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2022 10:31 Leikmenn ganverska landsliðsins áttu fótum fjör að launa þegar súrir og svekktir stuðningsmenn Nígeríu réðust inn á völlinn í Abuja. ap/Sunday Alamba Stuðningsmenn nígeríska fótboltalandsliðsins tóku því heldur illa þegar þeirra mönnum mistókst að komast á HM í fyrsta sinn síðan 2006.
Nígería gerði 1-1 jafntefli við Gana í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM í Katar í gær. Ganverjar fengu HM-sætið þökk sé marki á útivelli. Áður en flautað var til leiksloka í Abuja í gær flykktust reiðir stuðningsmenn Nígeríu inn á völlinn. Þeir reyndu að eyðileggja varamannaskýli, fella mörkin um koll og köstuðu hlutum í leikmenn og stuðningsmenn Gana. Leikmenn Gana áttu erfitt með að komast af vellinum og til búningsklefa en það tókst að lokum. Ekki liggur fyrir hvort einhver hafi meiðst í átökunum. Þegar lögreglan mætti á svæðið notaði hún kylfur til að kveða niður ólætin. Þegar það dugði ekki til notaði hún táragas. Nígería hefur verið fastagestur á HM frá því liðið komst þangað í fyrsta sinn 1994. Vonbrigðin voru því mikil þegar ljóst var að Nígeríumenn yrðu ekki með á HM í Katar í lok þessa árs. Gana, Marokkó, Túnis, Senegal og Kamerún verða fulltrúar Afríku á HM í Katar.
HM 2022 í Katar Nígería Mest lesið Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Fótbolti Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Fótbolti Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Sjá meira