Innlent

Alvarleg líkamsárás á starfsmann Vinakots

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eitt af búsetuúrræðum Vinakots þar sem unnið er með börnum og ungmennum með fjölþættan vanda.
Eitt af búsetuúrræðum Vinakots þar sem unnið er með börnum og ungmennum með fjölþættan vanda. Vinakot

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem beindist gegn starfsmanni í einu af búsetuúrræðum Vinakots í síðustu viku. Starfsmaðurinn hefur lýst því á samfélagsmiðlum hvernig hann hafi fengið mjög mörg þung höfuðhögg og þurfi að notast við hjólastól til að komast á mili staða.

Vinakot er úrræði ætlað börnum og ungmennum sem glíma við fjölþættan vanda. Skjólstæðingar eru með sín eigin herbergi sem þau gera persónuleg með aðstoð starfsmanna.

Í tilkynningu frá Vinakoti kemur fram að forsvarsfólk Vinakots sé miður sín vegna árásarinnar. Hugur þess sé hjá starfsmanninum og skjólstæðingnum, þ.e. þeim sem varð fyrir árásinni og ungmenninu sem réðst á starfsmanninn.

„Fulltrúar Vinakots hafa ítrekað rætt við sveitarfélagið, sem annast málefni skjólstæðingsins, um að hann þurfi á öryggisvistun að halda. Vinakot býður ekki upp á slíkt úrræði. Sveitarfélagið telur sig hins vegar ekki hafa burði til að koma upp slíkri vistun. Þegar leitað hefur verið lausna hjá ríkinu fást aðeins þau svör að félagsþjónustan hafi færst frá ríki yfir til sveitarfélags árið 2011. Það er hins vegar ljóst að fæst sveitarfélög hafa burði til að koma sér upp öryggisvistun,“ segir í tilkynningunni.

Skjólstæðingurinn hafi sýnt af sér ógnandi hegðun áður en aldrei í líkingu við það sem gerðist í liðinni viku. 

„Fulltrúar Vinakots hafa gert sitt besta til að koma til móts við þarfir viðkomandi skjólstæðings en ljóst er að hann þarf önnur og meiri úrræði.“

Aðalheiður Þ. Bragadóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Vinakots, segir í tilkynningunni fyrir hönd Vinakots vonast til að farsæl lausn finnist á málefnum skjólstæðingsins.

Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×