Útskriftarnemar HR fara loksins á sína fyrstu árshátíð áður en skólagöngu þeirra lýkur Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 29. apríl 2022 14:30 Alexander Ágúst Mar Sigurðsson, formaður stúdentaráðs HR, pantaði glimmer þjónustu fyrir árshátíðina og hlakkar til að fagna með samnemendum sínum. Aðsend Það ríkir mikil gleði hjá nemendum Háskólans í Reykjavík um þessar mundir þar sem þeir eru loksins að halda árshátíð eftir þriggja ára bið. Veisluhöldin eru þeim án efa kærkomin en fyrir tveimur árum var árshátíðinni aflýst degi fyrir viðburðinn vegna Covid. Blaðamaður hafði samband við Alexander Ágúst, formann stúdentafélags HR, og tók púlsinn á honum.
Hvernig er stemningin fyrir laugardagskvöldinu? Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins stemningu! Á fyrstu mínútunni seldist rúmlega helmingur miðanna upp í gegnum tix.is. Við erum með glimmer þema og HR-ingar tæmdu erlendu vefverslanirnar sama dag og þemað var tilkynnt. Það er náttúrulega ekkert úrval fyrir okkur strákana þannig við í Stúdentafélaginu (SFHR) ákváðum að panta glimmer þjónustu sem verður á staðnum til að glimmera mannskapinn upp. Ég persónulega hringdi í Pál Óskar í von um að fá jakkaföt lánuð en það símtal fór nú ekki langt. Það verður að teljast vel við hæfi að hafa glimmer þema á langþráðri árshátíð. Aðsend Hefur undirbúningur staðið yfir í langan tíma? Já klárlega! Hún átti upphaflega að vera 19. mars þannig að undirbúningur hefur líklegast byrjað í október á síðasta ári. Ég held að þetta hafi aldrei verið gert áður, en í ár ákváðum við að fá viðburðarfyrirtækið Senu til liðs við okkur og ég er með eitt lýsingarorð fyrir Sindra Ástmarsson starfsmann Senu. Hann er geit. Einnig er ég ótrúlega þakklátur fyrir alla þá sem hafa komið að þessu úr mismunandi áttum og síðast en ekki síst árshátíðarnefnd Stúdentafélagsins en hún hefur gert frábæra hluti. Undirbúningur fyrir árshátíðina hófst í október á síðasta ári.Aðsend Hvað hafið þið þurft að fresta árshátíðinni oft? Það komu þarna tvö ár í röð þar sem þyrstir HR-ingar voru næstum því þornaðir upp en við erum að vona það gerist nú aldrei aftur. Ég var sjálfur í árshátíðarnefndinni fyrir tveimur árum. Þá var allt klárt en árshátíðinni var flautað af daginn fyrir árshátíð þar sem fyrstu takmarkanir landsins vegna Covid fengu að líta dagsins ljós, því miður. Hvað eru margir gestir væntanlegir? Við í stúdentafélaginu erum að slá eitthvað met held ég. Yfir þúsund manns munu mæta til að rífa þakið af þessari Gróttuhöll, eins og ég vil kalla hana. View this post on Instagram A post shared by SFHR (@studentafelagidsfhr) Akkúrat núna eru einhverjir örfáir miðar eftir á tix.is en miðasala er nú opin almenningi! Við vitum samt öll hvernig klassíski Íslendingurinn virkar. Bíður með miðakaup þangað til það verður allt í einu uppselt. Heldurðu að margir þurfi að skella sér í danskennslu til að rifja upp góða takta á gólfinu eftir langa árshátíðar fjarveru? Hvernig ert þú sjálfur undirbúinn fyrir dansgólfið? Ég held að lýðurinn sé búinn að vera heima í Singstar og að dilla sér við Youtube allt of lengi þannig fólkið ætti alveg að kunna þetta! Pabbi minn er fyrrverandi Íslandsmeistari í samkvæmisdansi þannig ætli ég biðji hann ekki um að kenna mér nokkur spor daginn fyrir árshátíðina!
Háskólar Tónlist Lífið Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Fleiri fréttir Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Sjá meira