Zlatan getur bara æft einu sinni í viku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2022 11:01 Zlatan Ibrahimovic hefur ekki skorað deildarmark síðan í byrjun janúar eða undanfarna fjóra mánuði. EPA-EFE/MATTEO BAZZI Það lítur út fyrir að líkami Zlatan Ibrahimovic ráði ekki við mikið meira en að klára þetta tímabil.
Ibrahimovic glímir við langvinn meiðsli á sama tíma og lið hans er að berjast um ítalska meistaratitilinn. Nú segja fjölmiðlar á Ítalíu að sænski framherjinn geti lítið æft þessa dagana. Sky Italia slær því upp að Ibrahimovic ráði bara við eina æfingu í viku og að hann spili líklega ekki meira en tíu mínútur í hverjum af þeim leikjum sem AC Milan á eftir. Instagram/@sportbladet Ibrahimovic hefur skorað 8 mörk í 22 leikjum í Seríu A á þessu tímabili. Hann hefur þó ekki skorað deildarmark síðan 9. janúar. AC Milan tryggir sér ítalska meistaratitilinn, þá þann fyrsta í ellefu ár, ef liðið nær í fjögur stig af sex mögulegum í lokaleikjum sínum á móti Atalanta og Sassuolo. Zlatan var líka með AC Milan þegar liðið varð síðast meistari vorið 2011. Ibrahimovic hefur verið duglegur að næla sér í meiðsli á þessari leiktíð en að þessu sinni eru það hnémeiðslin sem eru að angra hann mest. Zlatan æfir bara með AC Milan daginn fyrir leik en heldur sig annars við það að æfa einn. Ætli hinn fertugi Zlatan að spila áfram á næstu leiktíð þá er öruggt að hann þarf að fara í aðgerð á hné í sumar.
Ítalski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Rodri ekki meira með KA í ár Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut City að vinna United í slagnum um Anderson Sjá meira