Málið er að ef þér finnst eins og allt gangi á afturfótunum eða ekki að ganga upp eins og þú vildir, er það fyrsta sem við þurfum að gera - og það mest áríðandi -að velta því fyrir okkur:
Hvernig er ég að hugsa?
Því rétt eins og það er sagt að við getum manifestað draumana okkar og markmið með jákvæðum hugsunum (sem efla sjálfsöryggið okkar, útgeislun og almenna bjartsýni), gildir það sama um neikvæðar hugsanir: Við getum verið að manifesta það fyrir slysni að skemma fyrir okkur sjálfum á hverjum degi!
En hér eru þrjú ráð sem geta hjálpað
1. Að vera á vaktinni og snúa vörn í sókn
Fyrsta atriðið er að átta okkur á því hvenær neikvæðar hugsanir skjóta upp kollinum.
Ef við erum til dæmis að sækja um draumastarfið okkar, verðum við að hafa trú á því að við getum fengið það starf (ekki að hugsa: „Ég ætla að sækja um, en ég fæ verð örugglega ekki ráðin/n“).
Þetta gæti virkað mjög auðvelt en hið rétta er að oft tekur smá tíma að átta sig á því að neikvæðar hugsanir eru að læðast að okkur mörgum sinnum á dag.
Ágætis ráð er að þegar okkur finnst eitthvað ekki vera að ganga upp eða erum óánægð með eitthvað, er tilvalið að velta fyrir okkur: Hvernig var ég að hugsa þetta yfir höfuð? Var það á jákvæðu nótunum eða neikvæðum nótum?
Og snúa þannig vörn í sókn, sækja í jákvæðar hugsanir því þær neikvæðar gera okkur hreinlega ekkert gagn.
2. Ekki dæma þig
Þegar að þetta átak hjá okkur byrjar, munum við átta okkur á því að oft á dag erum við líkleg til að falla í neikvæðar hugsanir.
Enda styðja ýmsar rannsóknir við það að manninum er það yfir höfuð tamara af margvíslegum ástæðum en hitt.
Þannig að verkefnið okkar felst annars vegar í að umbreyta neikvæðum hugsunum í jákvæðar hugsanir en hins vegar í því að fara ekki að dæma okkur sjálf og gagnrýna fyrir að hafa verið að hugsa neikvætt!
3. Finndu leiðina sem virkar fyrir þig
Loks er það að finna bestu leiðina til að virkja hugann í jákvæðum hugsunum. Þessi leið getur verið afar mismunandi hjá fólki.
Til dæmis virkar það fyrir suma að fara með möntru á hverjum degi, að hugleiða, leita í trúnna, setja sér jákvætt markmið fyrir daginn, skrifa í dagbók, finna leið hjá ráðgjafa/í þjálfun, gúggla og lesa góð ráð á netinu, virkja sig í þakklæti og fleira.
Og viti menn:
Áður en þú veist af fara hlutirnir að ganga betur, hvort heldur sem er markmið, verkefni eða samskipti við annað fólk.