Atvinnulíf

Öll heimilis­verk skemmti­leg nema eitt

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það þarf varla að spyrja um áhugamálin en Guðrún Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fastus segir að eina heimilisverkið sem henni finnst frekar leiðinlegt sé kompan. Þar virðist hún taka til en dót samt bætast við.
Það þarf varla að spyrja um áhugamálin en Guðrún Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fastus segir að eina heimilisverkið sem henni finnst frekar leiðinlegt sé kompan. Þar virðist hún taka til en dót samt bætast við. Vísir/Anton Brink

Guðrún Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Fastus er ein þeirra sem byrjar að hugsa um helgarmatinn á fimmtudögum, skoðar uppskriftir og elskar að dúlla sér að elda í nokkrar klukkustundir. Guðrún segist svolítið skrítin þegar kemur að heimilisverkunum, þau séu nefnilega ekkert leiðinleg.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna kringum 6:15.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég vakna í rólegheitum um klukkan 6:15, græja það sem þarf fyrst á morgnana, sest með góðan kaffibolla og morgunmat, renn yfir Moggann og skoða vinnudagatalið. 

Svo keyri ég af stað um 7:15, hlusta á morgunútvarpið og byrja að spá í daginn. Það eru forréttindi að hafa gaman af vinnunni og hlakka til að vakna og mæta.“

Hvert er uppáhaldsheimilisverkið og hvaða heimilisverk finnst þér leiðinlegast?

„Mér finnst mjög gaman í eldhúsinu, get alveg gleymt mér yfir flóknum uppskriftum og dúllað mér við að elda í nokkra klukkutíma. Svo er auðvitað alltaf mjög gaman þegar börnin eða barnabörnin koma – þá er líf og fjör. Oft er ég farin að spá í helgarmatinn á fimmtudögum og skoða uppskriftir til að finna eitthvað rosa girnilegt.

Ég þarf að hugsa lengi til að finna eitthvað leiðinlegt, því ég er eiginlega svo skrítin að ég meira segja strauja mikið og finnst það bara nokkuð gaman – set þá á góða bók eða hlaðvarp og hlusta.

Ef eitthvað er leiðinlegt, þá er það að taka til í kompunni. Sama hversu oft ég tek þar til, þá virðist alltaf bætast við dót sem er fyrir og út um allt.“

Dagbókin og minnispunktar nýtast Guðrúnu vel fyrir skipulagið í vinnunni en eins það að mæta snemma en taka pásu seinnipartinn og fara í göngutúr í Heiðmörk.Vísir/Anton Brink

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Hjá Fastus eru verkefnin mjög fjölbreytt. Núna erum við í mörgum ráðningum og fáum frábær teymi inn í allar deildir og í stjórnunarstörf. Það hafa verið miklar breytingar undanfarið og við erum á kafi í endurskipulagningu – að gera fyrirtækið enn öflugra og betra og einbeita okkur að því að vera fyrsti valkostur viðskiptavinarins. Það er alltaf hægt að gera betur.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég er sem betur fer mjög skipulögð að eðlisfari og er með allt skráð í dagbók. Ég tek líka mikið af minnispunktum á fundum til að passa að ekkert falli á milli og gleymist. Í miklu ati, eins og búið hefur verið að vera, er nauðsynlegt að skipuleggja tímann vel.

Við erum með framkvæmdastjórnarfundi á miðvikudagsmorgnum þar sem mörg mál eru tekin fyrir og oft fara af stað miklar og fjörugar umræður.

Mér finnst gott að mæta snemma og vera byrjuð á deginum, og frekar taka pásu seinnipart, fara í göngu í Heiðmörkinni og setjast svo aftur við tölvuna og klára daginn. 

Þetta virkar mjög vel fyrir mig.“

Hvenær ferðu að sofa á virkum kvöldum?

„Ég er mjög kvöldsvæf og algjör A-týpa ef svo má segja. Ég vil vera komin upp í rúm ekki seinna en klukkan 22 og stundum meira segja fyrr, fer allt eftir deginum. Ég er rosa hrifin af heilögu þrenningunni: svefni, hreyfingu og mataræði. Það er mitt jafnvægi.“


Tengdar fréttir

„Ég gríp eiginlega strax í hina heilögu tvennu“

Ef Birgir Olgeirsson, fyrrum fréttamaður og samskiptastjóri, væri hetja í teiknimynd væri hann Batman. Ekki vegna hetjudrauma heldur einfaldlega vegna þess að Batman var hans uppáhald. Birgir er einn af þeim sem skoðar veðurspána alltaf á morgnana.

„Fer út í daginn uppfull af hundaknúsi“

Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Gæludýr.is, home&you og formaður FKA, gefur sjálfum sér 2 í einkunn fyrir að vera handlaginn á heimilinu. Þar geti hún reyndar afkastað miklu en verulega geti vantað upp á vandvirknina.

Steinhissa á MR og rifjar lúmskt upp sjónvarpsleysið á fimmtudögum

Með fjóra unglinga á heimilinu snýst stærsta spurningin á morgnana um það hversu margir verða í kvöldmat segir Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Sem segir Fallin spýta og kýló hafa verið uppáhalds útileikirnir hans á Ísafirði forðum daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×