Sex ára fangelsi og fær ekki að halda Rolex-úrinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. maí 2022 15:41 Steingrímur Þór Ólafsson í haldi lögreglunnar í Venesúela árið 2010. Lögreglan í Venesúela Steingrímur Þór Ólafsson hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir umfangsmikil fíkniefnabrot sem tengdust umfangsmikilli amfetamínsframleiðslu í sumarbústað í Kjós. Jónas Árni Lúðvíksson fékk sex mánaða dóm fyrir aðild sína að framleiðslunni. Dómur var kveðinn upp í síðustu viku.
Málið má rekja til þess að lögreglu barst ábending haustið 2019 um að amfetamínbasi hefði verið fluttur til landsins. Eftir umfangsmikla rannsókn lögreglu blönduðust Jónas Árni og Steingrímur Þór, sem kalla mætti góðkunningja lögreglunnar, inn í rannsóknina. Eftirför upp í Kjós og til baka Fylgst var með þeim í nokkurn tíma og þann 18. janúar 2020 fylgdu lögreglumenn bíl þeirra eftir upp í sumarbústað í Kjós þar sem vinkona þeirra var búsett. Lögreglumenn sáu Jónas og Steingrím innandyra með öndunargrímur og urðu varir við eld og reyk sem lagði frá húsnæðinu. Fimm klukkutímum síðar yfirgáfu þeir sumarbústaðinn og keyrðu aftur til höfuðborgarinnar með bakpoka. Á leiðinni urðu þeir varir við lögreglu og tóku plastílát úr bakpokanum. Lögregla stöðvaði för þeirra með því að þvinga bílinn út af Suðurlandsvegi austan við Rauðavatn. Neituðu þeir að yfirgefa bílinn og tæmdi Jónas plastílátið yfir bílinn og umhverfi hans. Lögregla reyndi að ná efninu úr bílnum og snjónum. Samtals fannst 21,11 grömm af amfetamíni í bílnum, á sætum, gólfi og mælaborði. Þá fannst 12,61 grömm af amfetamíni í eldföstum mótum. Öll þrjú sættu ákæru fyrir fíkniefnaframleiðslu í sumarbústaðnum en neituðu sök. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að hafið væri yfir skynsamlegan vafa, með vísan til sönnunargagna af vettvangi, vitnisburði og framburðs lögreglumanna, að þau hefðu gerst sek um brotið. Geymdi vökva á heimili annars Steingrímur var að auki ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni fimm þúsund millilítra af vökva sem innihélt amfetamínsbasa. Vökvinn var geymdur á heimili aðila sem hafði um tíma stöðu sakbornings í málinu. Gögn málsins studdu framburð viðkomandi að Steingrímur væri raunverulegur eigandi efnanna. Hann hefði aðeins geymt töskuna. Með vísan til magns og styrks efnisins, sem var mikill, þótti dómstólnum augljóst að efnið væri ætlað til söludreifingar. Var Steingrímur Þór því sakfelldur fyrir ákæruliðinn. Þá játaði konan að hafa ræktað kannabisplöntur í sumarhúsinu. Jónas Árni var svo sakfelldur fyrir að hafa haft rúmlega 250 grömm af amfetamíni á heimili sínu í sölu- og dreifingarskyni. Hann neitaði að efnin hefðu verið ætluð til sölu. Eiga að baki þunga dóma Héraðsdómur Reykjavíkur leit til þess við ákvörðun refsingar að um var að ræða skipulagða starfsemi um að framleiða talsvert magn af sterkum fíkniefnum sem til stóð að koma í dreifingu. Þá hefði framleiðslan verið unnin í samverknaði þótt þáttur hvers og eins væri ekki jafn. Þá leit dómurinn til þess að þótt ekki hefði tekist að leggja hald á mikið magn amfetamíns þá væri ekki hægt að horfa fram hjá því að þeim hafi tekist að koma mun meira magni undan. Jónas Árni, sem fékk fimm ára fangelsi árið 2009 fyrir aðild sína að Papeyjarmálinu svokallaða, fékk sex mánaða dóm. Konan fékk sextíu daga dóm en hún átti ekki annað á sakavottorði en eina lögreglustjórasátt og tvo dóma vegna brota á umferðarlögum. Steingrímur var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi árið 2017, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir aðild að umfangsmiklu fjársvikamáli. Steingrímur var á sínum tíma framseldur frá Venesúela til Íslands vegna málsins. Með broti sínu nú rauf hann skilorð og þótti sex ára fangelsi hæfileg refsing fyrir Steingrím. Pabbinn sagðist eiga Rolex-úrið Saksóknari gerði kröfu um upptöku á fíkniefnum og ýmsum búnaði. Steingrímur andmælti upptöku á Rolex-armbandsúri sem lögregla lagði hald á. Faðir Steingríms hélt því fram að úrið væri í hans eigu en Steingrímur hefði keypt það með peningum frá honum. Steingrímur hafði úrið á sér við handtöku. Samkvæmt upplýsingum frá úrsmiði keypti Steingrímur úrið þann 6. nóvember 2017 á rúma eina milljón og greiddi fyrir með reiðufé. Þann 27. apríl, tveimur vikum eftir að Steingrímur var laus úr gæsluvarðhaldi, var nafni eiganda breytt í nafn föður hans. Meðal gagna málsins voru útprentuð samskipti milli Steingríms og vinkonu á samskiptaforriti þar sem hann sýndi úrið og sagðist hafa keypt það. Við skýrslutöku hjá lögreglu sagði faðir hans að Steingrími hefði langað að kaupa úrið fyrir hann, faðirinn hefði leyft honum og það og gefið honum peninga til þess. Steingrímur hefði þó verið með úrið frá kaupdegi og fram að handtöku. Aðspurður sagðist faðirinn ekki vita hvort úrið passaði á eigin úlnlið. Héraðsdómi þótti sannað að úrið væri í eigu Steingríms og gerði það upptækt. Málið var umfangsmikið sem má meðal annars sjá af málsvarnarlaunum verjenda. Jónas Árni þarf að greiða Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni, verjanda sínum, tólf og hálfa milljón króna í málsvarnarlaun. Steingrímur þarf að greiða Magnúsi Jónssyni, verjanda sínum, rúmar 13 milljónir króna og þá var Leó Daðasyni, verjanda konunnar, dæmdar tæpar ellefu milljónir í málsvarnarlaun. Dóminn í málinu má lesa hér.
Dómsmál Fíkniefnabrot Tengdar fréttir Tveir karlmenn og kona ákærð fyrir amfetamínframleiðslu í Kjós Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karlmenn og konu fyrir amfetamínframleiðslu í sumarbústað í Kjós. Mennirnir, Jónas Árni Lúðvíksson og Steingrímur Þór Ólafsson, eru báðir með dóma á bakinu; Jónas hlaut dóm í Papeyjarmálinu svokallaða árið 2009 og Steingrímur var framseldur til Íslands frá Venesúela í tengslum við VSK-málið svokallað. 6. janúar 2022 10:45 Tveir eftir í gæsluvarðhaldi Jónas Árni Lúðvíksson og Steingrímur Þór Ólafsson hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 5. mars grunaðir um aðild að framleiðslu á amfetamíni og peningaþvætti. 7. febrúar 2020 15:19 Lögregla heldur fjórum í varðhaldi en sleppir tveimur Fjórir karlmenn, sem grunaðir eru um aðild að umfangsmiklu sakamáli sem snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti, voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 31. janúar 2020 15:42 Mest lesið Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Erlent Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Erlent Ætla að vinda ofan af jafnlaunavottun Innlent Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa Erlent Erfitt að flytja tímabundið heim í tóm hús Innlent Afdrif Hörpunnar enn á huldu Innlent Hundrað milljónum stolið af landsmönnum Innlent „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Erlent „Ég er ekki sannfærður um að við höfum efni á þessu“ Innlent RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Innlent Fleiri fréttir Erfitt að flytja tímabundið heim í tóm hús Ætla að vinda ofan af jafnlaunavottun „Ég er ekki sannfærður um að við höfum efni á þessu“ Heimkoma Grindvíkinga, umdeild söngvakeppni og „kassabyggingum“ mótmælt Í annarlegu ástandi með tvo hnífa Hundrað milljónum stolið af landsmönnum Vill rannsóknarnefnd um rannsókn hrunmálanna Hnúfubakur í banastuði í Hvalfirði Steinn verður reistur við og brúin yfir Mógilsá löguð RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi „Skiptir máli að við séum öll að tala sama tungumál“ Göngubrúin sett upp í nótt og Sæbrautin lokuð á meðan Brýna fyrir eigendum að skilja hunda ekki eftir í bílum Hársbreidd frá hitameti í borginni Grindvíkingar fá að gista heima í sumar og hjúkrunarfræðingar vilja hertar reglur „Vinnubrögð sem maður er ekki vanur“ Forsetahjónin á leið á heimssýninguna í Japan Grindvíkingar fá að gista í húsunum sem þeir seldu Dæmi um að tvær fjölskyldur deili einni au pair Vill að háskólinn laði til sín landflótta fræðimenn frá Bandaríkjunum Afdrif Hörpunnar enn á huldu Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til Verði að kunna íslensku til að geta hjúkrað Tveir menn handteknir eftir að hafa komið sér fyrir í sameign húss Segist ekki taka hagsmuni sela fram yfir hagsmuni íþrótta Saumandi hressar og skemmtilegar bútasaumskonur Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar Varað við bikblæðingum um land allt Sjá meira
Tveir karlmenn og kona ákærð fyrir amfetamínframleiðslu í Kjós Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karlmenn og konu fyrir amfetamínframleiðslu í sumarbústað í Kjós. Mennirnir, Jónas Árni Lúðvíksson og Steingrímur Þór Ólafsson, eru báðir með dóma á bakinu; Jónas hlaut dóm í Papeyjarmálinu svokallaða árið 2009 og Steingrímur var framseldur til Íslands frá Venesúela í tengslum við VSK-málið svokallað. 6. janúar 2022 10:45
Tveir eftir í gæsluvarðhaldi Jónas Árni Lúðvíksson og Steingrímur Þór Ólafsson hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 5. mars grunaðir um aðild að framleiðslu á amfetamíni og peningaþvætti. 7. febrúar 2020 15:19
Lögregla heldur fjórum í varðhaldi en sleppir tveimur Fjórir karlmenn, sem grunaðir eru um aðild að umfangsmiklu sakamáli sem snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti, voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 31. janúar 2020 15:42