Segir það kjaftæði að ferðamenn sniðgangi Ísland vegna hvalveiða Kristján Már Unnarsson skrifar 23. júní 2022 21:42 Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í Reykjavíkurhöfn í gær við brottför hvalbátanna. Egill Aðalsteinsson Fyrsta langreyður vertíðarinnar, og jafnframt sú fyrsta sem skotin er við Ísland í nærri fjögur ár, veiddist um miðjan dag vestur af landinu. Búist er við að hvalurinn verði dreginn á land í Hvalfirði á morgun en þar var í kvöld byrjað að kynda undir kötlunum.
Þetta kom fram í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 úr hvalstöðinni en Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., staðfesti við fréttastofu síðdegis að fyrsti hvalurinn hefði veiðst fyrr í dag djúpt út af Faxaflóa. Það voru reyndar margir farnir að halda, eftir hléið sem staðið hefur yfir frá haustinu 2018, að hvalveiðar Íslendinga heyrðu sögunni til. Þegar rætt var við forstjóra Hvals á bryggjunni í Reykjavíkurhöfn í gær, við brottför hvalbátanna, var enginn bilbugur á honum varðandi framtíð hvalveiða. -Heldurðu að þú sért kominn til með að veiða hvali í mörg ár? „Það held ég að hljóti að vera,“ svaraði Kristján. Hvalur 8 siglir til hvalveiða í gær úr gömlu höfninni. Fjær má sjá skemmtiferðaskip í Sundahöfn.Egill Aðalsteinsson Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra er núna ráðherra málaflokksins. Í grein í Morgunblaðinu í febrúar benti hún á að núverandi veiðiheimildir giltu út árið 2023. Að óbreyttu yrði því engin veiði heimil á hvölum frá árinu 2024. Sýna þyrfti fram á að það væri efnahagslega réttlætanlegt að endurnýja veiðiheimildir. Að óbreyttu væri fátt sem rökstyddi það að heimila hvalveiðar eftir árið 2024. „Mér sýnist að þetta sé hennar prívatskoðun og hún má hafa hana ef hún vill,“ segir Kristján Loftsson. -Þú hefur ekki áhyggjur af því? „Engar áhyggjur af því,“ svarar hann. Frá hvalskurði í Hvalfirði. Um 150 manns munu starfa við hvalvertíðina, þar af um 120 manns í hvalstöðinni.Vilhelm Gunnarsson Í könnun sem Náttúruverndarsamtök Íslands birtu í síðustu viku kom fram að meirihluti landsmanna teldi hvalveiðar hafa neikvæð áhrif á orðspor Íslands. Í frétt á Vísi var haft eftir Jóhannesi Þór Skúlasyni, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, að hvalveiðar hefðu jafnvel svo neikvæð áhrif að fólk sniðgengi ferðalög til Íslands. -Ferðaþjónustan segir að þetta skaði ímynd Íslands og orðspor. Hefur þú áhyggjur af því? „Nei, ég held þeir skaði sjálfa sig mest með þessu kjaftæði. Ef þú skoðar tölurnar þá heldur þetta ekki vatni hjá þeim, ekki neitt.“ -Og ekki fækkar ferðamönnum? „Nei, ekki neitt. Ef þú skoðar statistíkina þá hefur þeim fjölgað ár eftir ár eftir að við byrjuðum aftur,“ segir forstjóri Hvals. Hvalur 8 við bryggjuna í Hvalfirði. Í sjónum fyrir framan má sjá hval dreginn í átt að hvalstöðinni.Vilhelm Gunnarsson Hvalbáturinn lagði um miðjan dag af stað áleiðis til lands með fyrsta hvalinn en búist var við að áhöfnin myndi reyna að veiða annan hval á leiðinni. Því var óvíst undir kvöld hvenær hann kæmi í Hvalfjörð. Áætla má að siglingin af miðunum geti tekið tólf til fimmtán klukkustundir en einnig gæti kalsaveður hægt á siglingunni. Það þykir þó nokkuð víst að hvalur verði dreginn á land í hvalstöðinni á morgun og menn muni þar sjá hvalskurð á ný á vinnsluplaninu. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Hvalveiðar Sjávarútvegur Ferðamennska á Íslandi Hvalfjarðarsveit Tengdar fréttir Forstjóri Hvals býst við fyrsta hvalnum á land fyrir helgi Hvalbátarnir héldu til veiða í dag og vonast Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., til að fyrsti hvalurinn verði kominn á land fyrir helgi. Hann efast þó um að það takist að veiða alla kvótann en segir ekkert vesen að selja hvalkjötið. 22. júní 2022 22:22 Fólk sniðgangi ferðalög til Íslands vegna hvalveiða Könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands leiðir í ljós að meirihluti landsmanna, eða um 65 prósent, telja hvalveiðar hafa neikvæð áhrif á orðspor Íslands. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir kominn tími til að stjórnvöld taki mark á þeim áhrifum sem hvalveiðar hafi á ferðaþjónustuna í landinu. 16. júní 2022 11:53 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira
Forstjóri Hvals býst við fyrsta hvalnum á land fyrir helgi Hvalbátarnir héldu til veiða í dag og vonast Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., til að fyrsti hvalurinn verði kominn á land fyrir helgi. Hann efast þó um að það takist að veiða alla kvótann en segir ekkert vesen að selja hvalkjötið. 22. júní 2022 22:22
Fólk sniðgangi ferðalög til Íslands vegna hvalveiða Könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands leiðir í ljós að meirihluti landsmanna, eða um 65 prósent, telja hvalveiðar hafa neikvæð áhrif á orðspor Íslands. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir kominn tími til að stjórnvöld taki mark á þeim áhrifum sem hvalveiðar hafi á ferðaþjónustuna í landinu. 16. júní 2022 11:53