Innlent

Kennsla hefst á ný í Foss­vogs­skóla

Árni Sæberg skrifar
Fossvogsskóla var fyrst lokað vorið 2019 vegna myglu sem fannst í húsnæði skólans. 
Fossvogsskóla var fyrst lokað vorið 2019 vegna myglu sem fannst í húsnæði skólans.  Vísir/Vilhelm

Nemendur og kennarar snúa aftur í Fossvoggskóla í haust eftir að hafa verið „á hrakhólum í fjögur ár.“

Í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að kennsla hefjist í Fossvogsskóla í haust þrátt fyrir að einhverjum verklegum þáttum verði ekki lokið fyrir upphaf skólastarfs þann 22. ágúst.

Málefni Fossvogsskóla hafa mikið verið í deiglunni síðustu misserin vegna myglu í skólanum. Nemendur voru fyrst færðir úr skólanum í mars 2019 og síðast í mars í fyrra. 

„Það eru eiginlega fjórir vetur sem börnin hafa verið meira og minna á hrakhólum. Börn sem luku fjórða bek í vor hafa aldrei verið í eðlilegu skólastarfi. Þetta hefur haft mjög neikvæð áhrif á skólagönguna og komið niður á líðan barnanna,“ hefur Morgunblaðið eftir Karli Óskari Þráinssyni, formanni foreldrafélags Fossvogsskóla.

Fyrst um sinn verður skólastarf í tveimur álmum Fossvogsskóla, Austur- og Vesturlandi, en ekki hefur verið tekin ákvörðun um afdrif Meginlands, þeirrar álmu sem verst er farin. Foreldrar hafa farið fram á það að Meginland verði rifið en borgin heldur í vonina um að nýta megi álmuna með verulegum breytingum.


Tengdar fréttir

Skólastjóri Fossvogsskóla hættir

Skólastjóri Fossvogsskóla er hættur störfum. Það kom fram í pósti sem Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, sendi í dag. Starfsemi Fossvogsskóla hefur verið flutt annað vegna myglu- og rakaskemmda.

Allt skólahald færist í Fossvogsdalinn næsta haust

Skólastarf í Fossvogsskóla mun allt fara fram í Fossvogsdal frá og með næsta skólaári. Ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir á húsnæði skólans til þess að komast fyrir mygluvandræði sem plagað hafa skólastarfið að undanförnu.

Mánaðar­leigan 1,2 milljónir króna

Reykjavíkurborg mun greiða 1,2 milljónir króna í leigu mánaðarlega fyrir húsnæði Hjálpræðishersins sem ætlað er að brúa bilið vegna kennslu fyrir yngstu nemendur Fossvogsskóla á meðan unnið er við uppsetningu bráðabirgðahúsnæðis á lóð skólans meðan viðgerðir fara fram á aðal húsnæði Fossvogsskóla.

Víkingar ósáttir og skóla­ráð boðað til fundar

Skólaráð Fossvogsskóla hefur verið boðað til fundar í dag klukkan 17. Þar má búast við að húsnæðisvandi skólans verði til umræðu en eins og Vísir greindi frá eru foreldrar afar ósáttir með að yngsta stig skólans fái kennslu sína á neðstu hæð Víkingsheimilisins fram á miðjan september. Forsvarsmenn Víkings harma að hafa dregist inn í neikvæða umræðu í fjölmiðlum.

Tekur ekki í mál að kenna frammi á gangi

Kennari í þriðja bekk í Foss­vogs­skóla tekur það ekki í mál að kenna börnum frammi á gangi í tengi­byggingu Víkings­heimilisins. Hún kveðst þó meira en til­búin til að kenna í hús­næði Hjálp­ræðis­hersins, sem bauð Reykja­víkur­borg af­not af byggingunni undir skóla­starfið í dag, og er bjartsýn á næstu vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×