Búin að verja flest víti allra á HM og frábærlega úr dauðafærum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2022 10:10 Ethel Gyðu Bjarnasen ver eitt af fjölmörgum skotum sínum í mótinu. IHF Ísland er greinilega búið að eignast nýjan öflugan framtíðarmarkmann í HK-stelpunni Ethel Gyðu Bjarnasen.
Ethel Gyða hefur nefnilega farið á kostum í fyrstu tveimur leikjum átján ára landsliðsins á HM kvenna í Norður-Makedóníu. Ethel Gyða tryggði íslenska landsliðinu jafntefli á móti Svartfjallalandi með því að verja vítakast þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum. Þetta var fjórða vítið sem hún ver í tveimur fyrstu leikjunum og enginn annar markvörður hefur varið fleiri víti. Jafntefli voru frábær úrslit hjá stelpunum okkar sem eru nú komnar í góða stöðu til að komast upp úr riðlinum og í milliriðil. Liðið vann Svía í fyrsta leik. Lokaleikur riðilsins gegn Alsír fer fram í dag en í gær var kærkominn frídagur hjá liðinu. Ethel Gyða er að verja betur en flestir úr dauðafærum samkvæmt tölfræði Alþjóða handknattleiksambandsins. Auk þess að verja flest víti þá hefur hún einnig sex af sjö skotum af línunni (86%) og 2 af 3 skotum úr hraðaupphlaupum (67%). Þá er hún með 60 prósent markvörslu úr hornum (3 af 5). Ethel Gyða er þar með búin að verja 15 af 23 skotum úr dauðafærum á þessu móti til þessa sem gerir 65 prósent markvörslu. Ethel Gyða hélt upp á sautján ára afmælið sitt á laugardaginn og er næstyngsti leikmaður íslenska hópsins.
Handbolti Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Fram - Afturelding | Hörkuleikur í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Sjá meira