Martin Ziegler, yfirmaður íþróttadeildar The Times, ræddi við Sky Sports um stöðu mála hjá Man United.
„Ég tel það skiljanlegt að leikmenn á borð við Harry Maguire geti lýst yfir áhyggjum sínum [á skorti á nýjum leikmönnum], sérstaklega er kemur að breidd leikmannahópsins. Það er þó kaldhæðnislegt þar sem það eru leikmennirnir sem eru ekki að standa sig. Þeir eru að biðja aðra leikmenn um að koma inn og taka sæti þeirra í byrjunarliðinu.“
„Það vita allir hversu erfitt verkefni er framundan hjá Man United, þeir þurfa að sækja virkilega góða leikmenn ef þeir ætla að vera samkeppnishæfir.“
„Glazer fjölskyldan hefur aldrei verið hrædd við að setja pening í leikmannahóp félagsins. Á síðustu tíu árum hefur félagið eytt jafn miklu og hver annar. Vandamálið er að fá inn réttu leikmennina. Félagið þarf að komast í Meistaradeild Evrópu á þessari leiktíð, það er það sem venjulega rekur eigendurna í að setja pening í leikmannakaup.“
„Það er alltaf stór áskorun að fara til Man United. Kannski vissi Erik ten Hag ekki hversu erfitt þetta yrði. Hann vissi ekki hvernig leikmennirnir væru eða hvernig samheldnin í hópnum væri, hvernig mótherjar liðsins væru eða hvort leikmenn væru ósáttir með stöðu sína í liðinu. Hann er án efa í áfalli eftir hörmungarbyrjun liðsins.“
„Ef þú horfir á Brentford leikinn, það voru nokkrir leikmenn sem virkuðu hægir og orkulausir. Þeir litu út fyrir að vera sigraðir um leið og fyrsta markið kom,“ sagði Ziegler að lokum við Sky Sports.
Manchester United fær Liverpool í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á mánudaginn kemur. Liðin hafa bæði byrjað illa á leiktíðinni og gæti sá leikur verið hin fullkomna leið til að koma tímabilinu af stað fyrir alvöru.