Veður

Hæg­viðri, skýjað að mestu en þurrt á landinu í dag

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það verður skýjað í dag en þurrt. Það er þó ekki að sjá ský í Reykjavík að morgni til þar sem er spáð sól og hita fram eftir degi.
Það verður skýjað í dag en þurrt. Það er þó ekki að sjá ský í Reykjavík að morgni til þar sem er spáð sól og hita fram eftir degi. Vísir/Vilhelm

Í dag verður hægviðri, skýjað að mestu leyti og þurrt á landinu samkvæmt spá Veðurstofunnar. Þó verður rigning á Suðausturlandi og víða á austanverðu landinu. Þá verður allhvasst norðaustantil og í Öræfum og eru ökumenn því hvattir til að aka varlega á því svæði.

Frá þessu er greint í hugleiðingum Veðurfræðings á vef Veðurstofunnar en þar segir:

„Á landinu eru hægir vindar, skýjað að mestu og yfirleitt þurrt, en langt suður af Ingólfshöfða er allmikil lægð, sem mjakast vestur. Úrkomusvæði lægðarinnar fer inn á Suðausturlandi upp úr hádegi og fer þá að rigna þar.“

Þá segir einnig að muni hvessa nokkuð „af norðaustri í dag og getur orðið allhvasst eða hvasst í Öræfum“ og eru ökumenn, sem hyggjast fara þar um, hvattir til að aka varlega, sérstaklega ef ökutæki þeirra taka á sig mikinn vind.

Loks segir að það verði áfram „norðanátt með vætusömu og svölu veðri norðanlands fram að helgi“ en sunnanlands verði „hægara og bjart með köflum“ og mun hlýrra.

Hiti á landinu verður á bilinu átta til sextán stig og þar af mildast á suðvesturlandi.

Veðrið um tvöleytið í dag en þar virðist langbesta veðrið vera á suðvesturhorninu.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu út vikuna

Á miðvikudag: Norðaustan og norðan fimm til tíu metrar á sekúndu og súld eða dálítil rigning, en úrkomulítið á Suður- og Vesturlandi. Bætir í rigningu austan til um kvöldið. Hiti níu til sextán stig, hlýjast á Suðvesturlandi. 

Á fimmtudag: Norðan átta til fimmtán metrar á sekúndu vestantil á landinu, en annars mun hægari. Rigning eða súld með köflum, en úrkomulítið á Suðurlandi. Hiti átta til fimmtán stig, hlýjast syðst.

Á föstudag: Norðan og norðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu, hvassast á annesjum. Dálítil rigning norðantil með fimm til tíu stig, en bjartviðri syðra og hiti að fimmtán stigum.

Á laugardag og sunnudag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en líkur á stöku skúrum syðra. Hiti átta til fjórtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×