Thelma segir að líklega megi rekja veikindin til þess að sýktu kranavatni hafi verið tappað á flöskur sem landsliðið fékk á veitingastað hótelsins sem það dvelur á.
Leikurinn í dag er í undankeppni EM og það er í höndum gestgjafa hverju sinni að sjá til þess að gestaliðið fái góða gistiaðstöðu og fæði. Thelma segir að hótelið sem íslenska liðið dvelji á standist hins vegar engan veginn kröfur og bendir á að svartfellska liðið sé á fínna hóteli ásamt dómurum og fleirum sem að leiknum komi.
Gestgjafar eigi einnig að útvega fararstjóra sem hafi hins vegar hvergi sést í Svartfjallalandi. Heimaliðið fari því ekki eftir þeim kröfum sem gerðar séu: „Bara alls ekki,“ segir Thelma, og bætir við að til dæmis hafi íslenska liðið átt að fá nestispakka fyrir leikinn í dag en hótelið aðeins getað útvegað kökur, ávexti og te.
Aðeins fimm í íslenska hópnum hafa alveg sloppið við matareitrun hingað til, að sögn Thelmu, en ástandið á hópnum hefur þó skánað.
Gátu ekki klárað æfingu í gær
„Þetta leit ágætlega út í morgun, það voru alla vega allar mættar í morgunmat, en svo misstum við aðstoðarþjálfarann út [með matareitrun] þegar við vorum á leiðinni á æfingu. Sumar gátu ekki klárað æfinguna í gærmorgun vegna svima og næringarskorts. Svo misstum við reyndar líka einn af lykilmönnum okkar [Maríu Rún Karlsdóttir] út í lok æfingar vegna meiðsla,“ segir Thelma.
„Við erum búnar að lenda í ansi miklu veseni með þetta hótel. Ekki bara varðandi þetta með vatnið. Það er líka búið að láta okkur ítrekað flakka á milli herbergja hérna,“ segir Thelma en matareitrunin er þó versta dæmið:
Uppgötvuðu sjálfar að sennilega væri vatninu um að kenna
„Við uppgötvuðum það í fyrradag að sennilega væri þetta út af vatninu á veitingastaðnum hér á hótelinu. Þá sáum við að flöskurnar sem við fengum í matnum voru ekki lokaðar, og það var mismikið í þeim. Við erum með eina í liðinu sem talar tungumálið hérna og hótelstarfsfólkið reyndi að herja á hana og sannfæra um að þetta væri bara vatn úr búðinni, en það er bara ekki satt.
Þetta byrjaði á einni stelpu í liðinu sem svaf bara ekkert alla nóttina, með „upp og niður“. Næsta fékk svo í magann í morgunmatnum og svo veiktust fleiri koll af kolli. Og þetta er enn að gerast því aðstoðarþjálfarinn veiktist í morgun. Við fimm sem höfum hingað til sloppið erum mjög stressuð fyrir heimferðinni í nótt,“ segir Thelma.
„Það sem við huggum okkur við er að það er alls engin pressa fyrir leikinn í dag. Við getum ekki gert neitt annað en okkar besta. En þetta er mjög svekkjandi því þetta er liðið sem við eigum góðan séns á móti,“ segir Thelma en íslenska liðið ferðast svo til Finnlands og fær vonandi betri móttökur þar.
Leikur Íslands og Svartfjallalands hefst klukkan 16 að íslenskum tíma og verður sýndur á eurovolley.tv.