Stórsigur Barcelona í fyrsta deildarleik Kounde Atli Arason skrifar 28. ágúst 2022 20:15 Jules Kounde spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Barcelona í dag. Getty Images Jules Kounde var í byrjunarliði Barcelona sem vann 4-0 sigur á Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Kounde var eini leikmaðurinn af þeim fimm sem Barcelona keypti í sumar sem átti enn þá eftir að skrá í leikmannahóp liðsins fyrir tímabilið. Barcelona hafði út ágúst mánuð til að klára skráningar og það virðist hafa gengið eftir. Barcelona tilkynnti sérstaklega á samfélagsmiðlum sínum að Kounde væri í byrjunarliðinu fyrir leikinn í dag, eftir að búið var að ganga frá öllum lausum endum. Yep, Jules Kounde in the starting XI pic.twitter.com/q1WARWgGjH— FC Barcelona (@FCBarcelona) August 28, 2022 Af hinum fjórum leikmönnunum sem Barcelona fékk til liðs við sig í sumar, voru Raphinha og Lewandowski líka í byrjunarliði Barcelona í leiknum og Franck Kessie kom inn sem varamaður. Andreas Christensen gat ekki leikið vegna veikinda. Lewandowski heldur áfram að raða inn mörkum en hann skoraði aftur tvö mörk í dag en pólski framherjinn gerði einnig tvö mörk síðustu helgi gegn Real Sociedad. Pedri og Sergi Roberto skoruðu hin tvö mörk Barcelona í þessum 4-0 sigri á Valladolid. Með sigrinum fer Barcelona upp í þriðja sæti með sjö stig á meðan Valladolid er með eitt stig í 19. sæti. Fótbolti Spænski boltinn