Lazio fékk Napoli í heimsókn í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta og úr varð hörkuleikur.
Heimamenn fengu draumabyrjun því Mattia Zaccagni átti gott skot utan vítateigs sem hafnaði í markinu strax á fjórðu mínútu.
Gestirnir unnu sig vel inn í leikinn og á 38.mínútu jafnaði Suður-Kóreumaðurinn Min-jae Kim metin.
Síðari hálfleikurinn byrjaði kröftuglega og herjuðu sóknarmenn Napoli á mark heimamanna. Það skilaði þó ekki marki fyrr en eftir klukkutíma leik en þá skoraði Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia laglegt mark.
Reyndist það sigurmark leiksins og tyllti Napoli sér þar með á toppinn með ellefu stig eftir fimm leiki.