Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum fimmtudaginn 8. september.
Íþróttadeild spáir Stjörnunni 4. sæti Olís-deildar karla í vetur og að Garðbæingar lyfti sér upp um tvö sæti frá síðasta tímabili.
Nokkrar væntingar voru gerðar til Stjörnunnar á síðasta tímabili eftir að hafa komist í undanúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins 2020-21. Og framan af gekk allt vel. Stjarnan vann fyrstu fimm leiki sína og var í góðri stöðu í 3. sæti deildarinnar fyrir janúar-hléið. En eftir það gekk allt á afturfótunum. Stjörnumenn töpuðu fyrstu fimm leikjum sínum á árinu 2022 og enduðu í 6. sæti. Í átta liða úrslitunum voru þeir svo engin fyrirstaða fyrir Eyjamenn.
Patrekur Jóhannesson er að fara inn í sitt þriðja tímabil með Stjörnuna. Akureyringarnir Hafþór Vignisson og Dagur Gautason eru farnir en Patrekur sótti sinn gamla lærisvein hjá Selfossi, Hergeir Grímsson. Hann ásamt Arnari Frey Ársælssyni og Jóhanni Karli Reynissyni ættu að styrkja Stjörnuvörnina sem var misjöfn á síðasta tímabili. Sjö lið fengu á sig færri mörk en Garðbæingar í fyrra.
Svo voru tvö gamalkunnug vandamál. Markvarslan var ekki nógu góð og heimavöllurinn gaf lítið. Stjarnan fékk aðeins tíu stig í ellefu leikjum í Mýrinni.
Patrekur ætlaði að gefa sér þrjú ár til að koma Stjörnunni á toppinn og nú er komið að skuldadögum. Mannskapurinn er góður og reyndur en líklega vantar örlítið meira til að fara alla leið.
Gengi Stjörnunnar undanfarinn áratug
- 2021-22: 6. sæti+átta liða úrslit
- 2020-21: 5. sæti+undanúrslit
- 2019-20: 8. sæti+bikarúrslit
- 2018-19: 8. sæti+átta liða úrslit
- 2017-18: 7. sæti
- 2016-17: 9. sæti
- 2015-16: B-deild (1. sæti)
- 2014-15: 9. sæti
- 2013-14: B-deild (2. sæti)
- 2012-13: B-deild (2. sæti)
Lykilmaðurinn

Eftir að hafa leikið með Selfossi allan sinn feril ákvað Hergeir að söðla um í sumar og endurnýja kynnin við Patrek. Og hann fór ekkert leynt með að Patrekur var stærsta ástæðan fyrir því að hann valdi Stjörnuna. Hergeir er gríðarlega mikill liðsstyrkur fyrir Garðbæinga. Hann er algjör járnkarl, spilar á fullu í vörn og sókn í sextíu mínútur og gefur aldrei neitt eftir. Kannski nær Hergeir að kveikja neistann sem þarf til að Stjarnan geti verið með alvöru læti í úrslitakeppninni.
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Arnar Freyr Ársælsson frá KA
- Hergeir Grímsson frá Selfossi
- Jóhann Karl Reynisson byrjaður aftur
- Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson frá Fjölni
Farnir:
- Hafþór Vignisson til Empor Rostock (Þýskalandi)
- Dagur Gautason til KA
- Brynjar Darri Baldursson hættur
- Sverrir Eyjólfsson hættur
Markaðseinkunn (A-C): B
Fortíðarhetja sem gæti nýst í vetur
Eftir brotthvarf Hafþórs standa Stjörnumenn eftir frekar naktir í hægri skyttustöðunni. Það væri því ekki amalegt að geta nýtt krafta Magnúsar Sigurðssonar sem gerði góða hluti með Stjörnunni á árum áður. Apótekarinn gæti eflaust fundið einhver meðul til að hjálpa Garðabæjarliðinu, bæði í vörn og sókn.