Fær níuna sem hafði verið hengd upp í rjáfur eftir andlát föður hans Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. september 2022 23:30 Jay Stansfield ásamt Matt Taylor, þjálfara Exeter City. Twitter@OfficialECFC Jay Stansfield mun klæðast treyju númer 9 hjá Exeter City í vetur en Stansfield kemur til liðsins á láni frá úrvalsdeildarliði Fulham. Það væri ef til ekki frásögu færandi nema fyrir þá staðreynd að faðir hans lék í treyju númer 9 hjá félaginu er hann lést langt fyrir aldur fram.
Jay Stansfield er 19 ára gamall framherji sem er í dag á mála hjá enska úrvalsdeildarliðinu Fulham. Segja má að Stanfsfield sé að snúa heim en fótboltaferill hans hófst hjá Exeter City. Þá má segja að hann verði ávallt bundinn félaginu ákveðnum tilfinningaböndum þar sem faðir hans, Adam Stansfield, var leikmaður liðsins þegar hann lést árið 2010 eftir harða baráttu við krabbamein aðeins 31 árs að aldri. Exeter, Hereford and Yeovil striker Adam Stansfield lost his battle with cancer 12 years ago at the age of 31Yesterday, his 19-year-old son Jay joined Exeter City on loan from Fulham, and has been handed his father's retired #9 shirt pic.twitter.com/YL8zC7vLAZ— Sky Sports News (@SkySportsNews) September 3, 2022 Stansfield eldri klæddist treyju númer 9 og nú mun sonur hans gera slíkt hið sama en treyjan var hengd upp í rjáfur til heiðurs Adam á sínum tíma. Exeter nefndi líka eina af stúkum heimavallar síns í höfuðið á Adam. Exeter er sem stendur í 9. sæti ensku C-deildarinnar með átta stig að loknum sex leikjum.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Fótbolti Fleiri fréttir Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Sjá meira