22,5 prósenta hlutur úr Íslandsbanka var seldur í lokuðu útboði í lok mars og mikil umræða skapaðist í apríl með tilheyrandi mótmælum á Austurvelli. Skýrsla var þá boðuð í júní, en hefur svo dregist fram í júlí, svo ágúst. Í september var fullyrt að skýrslan yrði tilbúin fyrir lok þess mánaðar.
Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi segir í samtali við fréttastofu að verið sé að reka smiðshöggið á skýrsluna innanhúss hjá Ríkisendurskoðun. Að því loknu verði skýrslan send forseta Alþingis, sem sendir skýrsluna áfram til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
„Þetta er bara vinna sem tekur sinn tíma, það þarf að vanda til. Og það eru málefnalegar skýringar á þeim tíma sem þetta hefur tekið og ég mun gera þinginu grein fyrir því þegar þar að kemur. Það er aldrei þannig að skýrslurnar okkar séu með einhvern fyrir fram ákveðinn útgáfudag. Þetta voru losaraleg tímamörk - júnímánuður - sem var gefinn upp í upphafi,“ segir Guðmundur.
Ljóst að almenningur fái ekki að sjá skýrsluna strax
Hann bætir við að komið hafi í ljós að verkefnið hafi verið umfangsmeira en talið var í upphafi.
„Það er alveg ljóst að skýrslan er ekki að koma fyrir sjónir almennings fyrr en að einhverjum tíma liðnum, sem ég hef ekki fulla stjórn á - það ræðst af málsmeðferð þingsins. Hins vegar hef ég ekki ástæðu til að ætla annað en að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd muni taka skýrsluna fyrir um leið og hún liggur fyrir,“ segir Guðmundur. Hann telur að almenningur fái að sjá skýrsluna í fyrri hluta október.
Finnst þér líklegt að tímamörkin standist?
„Já, þau standast. Skýrslan er á lokametrunum hjá okkur og ef að mönnum finnst ég vera búinn að segja það lengi þá er þetta langhlaup og lokametrarnir hafa verið svolítið langir. Við erum að reka smiðshöggið á þetta innanhúss hjá okkur og svo fer þetta til umsagnar og þaðan til forseta. En það er í rauninni stutt í þetta.“